Grásleppukarlar á Húsavík vorið 1981

Jósteinn Finnbogason og Héðinn Maríusson. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1981. Hér koma nokkrar myndir sem Hreiðar Olgeirsson á Húsavík tók vorið 1981 þegar grásleppukarlar voru að komnir að landi og voru að landa. Þetta voru þeir Jósteinn Finnbogason á Hafdísi ÞH 12 og Héðinn Maríusson á Hreifa ÞH 77. Héðinn Maríusson um borð í báti sínum. … Halda áfram að lesa Grásleppukarlar á Húsavík vorið 1981

Kristrún RE 177

256. Kristrún RE 177 ex Albert Ólafsson KE 39. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Línubáturinn Kristrún RE 177 kemur hér til hafnar í Reykjavík um árið. Upphaflega hét báturinn Ólafur Friðbertsson ÍS 34 frá Súgandafirði, smíðaður Flekkefjord í Noregi 1964. Síðar Albert Ólafsson KE 39 og um tíma HF 39. Aftur KE 39 og síðan þetta nafn sem hann … Halda áfram að lesa Kristrún RE 177

Víkurröst VE 70

2342. Víkurröst Ve 70 ex Víkurröst VE 2. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Víkurröst VE 70 sést hér koma til hafnar í Vestmannaeyjum í gær eftir handfæraróður. Víkurröst var var smíðuð hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1999 fyrir Þorstein Gunnarsson og var fyrst með heimahöfn í Vík í Mýrdal. Hún var með einkennisstafina VS og númerið … Halda áfram að lesa Víkurröst VE 70

Ný Cleopatra 33 til Mæri

Bajas M-1-RA. Ljósmynd Trefjar.is 2019. Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til Vågstranda sem er sveitarfélag í Mæri og Raumsdal í Noregi. Kaupandi bátsins eru feðgarnir Johan og Tobias Solgård og er Tobias skipstjóri á bátnum sem hefur hafið veiðar. Báturinn, sem hefur hlotið nafnið Bajas, er af gerðinni Cleopatra 33 … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 33 til Mæri

Örfirisey RE 4

2170.Örfirisey RE 4 ex Polarborg 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Þessar myndir af frystitogara HB, Granda, Örfirisey RE 4, voru teknar í marsmánuði árið 2018. Örfirisey var smíðuð árið 1988 í Kristiansund í Noregi fyrir Færeyinga og hét Polarborg 1. Grandi keypti skipið 1992 og þá fékk það nafnið Örfirisey RE 4. Það var lengt … Halda áfram að lesa Örfirisey RE 4