1272. Sturla GK 124 ex Sturla GK 12. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Línuskipið Sturla GK 124 lét úr höfn í Grindavík í hinsta sinn í dag en skipið hefur verið selt til Litháen þar sem það fer í brotajárn. Skipið hét upphaflega Guðmundur RE 29 á íslenskri skipaskrá en hann var keyptur til landsins árið … Halda áfram að lesa Sturla farinn áleiðis til Litháen
Vörður lagði úr höfn í gær
2962. Vörður ÞH 44. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Vörður ÞH 44 lagði úr höfn frá Grindavík í gærmorgun og tók Jón Steinar þessa myndasyrpu þá. 2962. Vörður ÞH 44. Ljósmyndir Jón Steinar 2020. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By clicking on the images you can view … Halda áfram að lesa Vörður lagði úr höfn í gær
Svanur ÍS 214
206. Svanur ÍS 214. Ljósmynd Hannes Baldvinsson Siglufirði. Svanur ÍS 214 var smíðaður árið 1960 í Þýskalandi og var 101 brl. að stærð. Báturinn var smíðaður fyrir Álftfirðing h/f og var heimahöfn hans Súðavík. Svanur ÍS 214 sökk í róðri út af Ísafjarðardjúpi þann 29. janúar árið 1969. Sex manna áhöfn hans komst um borð … Halda áfram að lesa Svanur ÍS 214
Höfrungur III ÁR 250
249. Höfrungur III ÁR 250 ex Höfrungur III AK 250. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Höfrungur ÁR 250 leggur hér úr höfn í Vestmannaeyjum um árið en upphaflega er þetta Höfrungur III AK 250. Höfrungur III, sem var 267 brl. að stærð, var smíðaður fyrir fyrir Harald Böðvarsson & co á Akranesi árið 1964. Smíðin fór fram … Halda áfram að lesa Höfrungur III ÁR 250
Áskell ÞH 48
298. Áskell ÞH 48. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Áskell ÞH 48 kemur hér að landi í Grindavík um árið en myndina tók Tryggvi Sigurðsson. Áskell ÞH 48 var smíðaður fyrir Gjögur h/f á Grenivík í Danmörku 1959, ári eftir að fyrirtækið missti Von TH 5. Von strandaði við Reykjanes árið 1958, mannbjörg varð en báturinn eyðilagðist. … Halda áfram að lesa Áskell ÞH 48
Tveimur árum og 1470 færslum síðar
Við Húsavíkurhöfn í gærkveldi. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Í dag eru tvö ár síðan þessi síða fór í loftið eftir að ég hóf að fikta við að búa hana til einhverjum dögum áður. Þessi færsla er númer 1470 sem gera rúmlega tvær færslur á dag í þessi tvö ár. Þetta væri ógerlegt nema fyrir góðvild manna … Halda áfram að lesa Tveimur árum og 1470 færslum síðar
Sæfari AK 55 á Siglufirði
208. Sæfari AK 55 ex Kópur EA 33. Ljósmynd Hannes Baldvinsson Siglufirði. Hér kemur mynd Hannesar Baldvinssonar á Siglufirði og sýnir hún vélbátinn Sæfara AK 55 frá Akranesi. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sæfara ber fyrir augu lesenda síðunnar því áður hefur birst mynd af honum og var hún einnig tekin af Hannesi … Halda áfram að lesa Sæfari AK 55 á Siglufirði
Norðursiglingarflotinn – 2
Bátar Norðursiglingar við bryggju á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Á þessari mynd sem tekin var í gær gefur að líta átta af tíu bátum Norðursiglingar við bryggju á Húsavík. Þetta eru Garðar, Bjössi Sör og Knörrinn. Skonnorturnar Donna Wood, Ópal, Hildur og Haukur. Og Andavari en Náttfari var við flotbryggju en hann er enn … Halda áfram að lesa Norðursiglingarflotinn – 2
Jólaljósin komin upp á Faldinum
1267. Faldur ex Faldur ÞH 153. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Jólaljósin eru komin upp á bátum Gentle Giants á Húsavík og setja svip sinn á höfnina sem og bæinn allan. Um er að ræða þrjá báta, Sylvíu, Aþenu og Fald sem sést á meðfylgjandi mynd. Ef veður helst gott er nokkuð víst að fleiri slíkar … Halda áfram að lesa Jólaljósin komin upp á Faldinum
Gunnar KG og norðurljósin
2076. Gunnar KG ÞH 34 ex Magnús ÞH 34. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Það er ekki oft sem maður myndar báta og norðurljós í sama skotinu enda bjóða aðstæður ekki oft upp á það. Ég lét nú samt vaða í kvöld þegar norðuljósin sýndu sig og tók mynd af Gunnari KG frá Þórshöfn þar sem … Halda áfram að lesa Gunnar KG og norðurljósin









