Hraunsvík GK 75 – Myndasyrpa

1907. Hraunsvík GK 75 ex Konráð SH 60. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Hér birtist myndasyrpa af Hraunsvík sem Jón Steinar tók í Grindavík um hádegisbil í gær. Strákarnir á Hraunsvíkinni þurftu að gera hlé á að draga skötuselsnetin vegna þess að glussaslanga gaf sig og skjótast í land og sækja nýja. Þeir héldu svo strax … Halda áfram að lesa Hraunsvík GK 75 – Myndasyrpa →

Keilir á Hornafirði

2946. Keilir. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2020. Sigurður Davíðsson tók þessa mynd í vikunni þegar olíuskipið Keilir kom til Hafnar í Hornafirði. Keilir er í eigu Olíudreifingar og var míðaður hjá Akdeniz skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Hann kom til landsins í fyrra, nánar tiltekið í febrúarmánuði. Keilir, sem leysti Laugarnes af hólmi í olíuflutningunum, siglir undir íslensku … Halda áfram að lesa Keilir á Hornafirði →

Ásgrímur kom með um 1000 tonn af síld

2780. Ásgrímur Halldórsson SF 250 ex Lunar Bow. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2020. Ásgrímur Halldórsson SF 250 kemur hér að landi á Hornafirði í gær með um 1000 tonn af síld sem fer til vinnslu hjá Skinney-Þinganesi. Ásgrímur Hallórsson SF 250 var smíðaður hjá Simek skipamíðastöðinni í Noregi árið 2000 fyrir Lunar Fishing í Skotlandi og … Halda áfram að lesa Ásgrímur kom með um 1000 tonn af síld →

Landað úr Karólínu

2760. Karólína ÞH 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Línubáturinn Karólína ÞH 100 kom að landi á Húsavík síðdegis og var þessi mynd tekin þegar löndun stóð yfir. Afli dagsins um fimm tonn og uppistaða hans þorskur. Karólína ÞH 100 er í eigu Doddu ehf. á Húsavík og var smíðuð hjá Samtak í Hafnarfirði árið 2007. … Halda áfram að lesa Landað úr Karólínu →

Eva BA 197

6181. Eva BA 197 ex Eva NS 197. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Strandveiðibáturinn Eva BA 197, sem gerður er út af Gulldrangi ehf., kemur hér að landi á Patreksfirði í sumar. Heimahöfn bátsins er Patreksfjörður. Eva var smíðuð árið 1980 í Bátasmiðjunni Mótun hf. í Hafnarfirði og hét upphaflega Viggó KE 201. Síðar bar hann … Halda áfram að lesa Eva BA 197 →

Bergey VE 544

1478. Bergey VE 544. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Skuttogarinn Bergey VE 544 hét upphaflega Lárus Sveinsson SH 126 á íslenskri skipaskrá en hann var keyptur notaður til landsins árið 1978. Hann hét áður President Arthur Brien og var keyptur frá Frakklandi en hann var smíðaður þar í landi árið 1974. Það voru fyrirtækin Hraðfrystihús Ólafsvíkur hf. … Halda áfram að lesa Bergey VE 544 →

Örninn GK 204

2606. Örninn GK 204 ex Guðfinnur GK 19. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Línubáturinn Örninn GK 204 kemur hér að landi í Grindavík vorið 2008. Báturinn var smíðaður hjá bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði fyrir Guðmund Ragnar Guðmundsson útgerðarmaður frá Drangsnesi. Báturinn, sem er af gerðinni Cleopatra 38, var afhentur í febrúar 2004 og fékk nafnið Kristbjörg … Halda áfram að lesa Örninn GK 204 →

Þorkell Árnason GK 21

1231. Þorkell Árnason GK 21 ex Hafalda SU 155. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þorkell Árnason GK 21 úr Garðinum er á þessum myndum sem teknar voru á mismunandi tímum að koma til hafnar í Sandgerði en þaðan var hann lengstum gerður út. Báturinn var smíðaður í Dráttarbrautinni hf. í Neskaupsstað 1972 fyrir Hafölduna h/f á Eskifirði. … Halda áfram að lesa Þorkell Árnason GK 21 →