Akraberg AK 65

2765. Akraberg AK 65. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Akraberg AK 65 var smíðað hjá Siglufjarðar-Seig fyrir Akraberg ehf. árið 2007 og er það af gerðinni Seigur 1120. Akraberg var skráð SI 90 árið 2010 og fluttist heimahöfnin frá Akranesi á Siglufjörð. Árið 2013 er það skráð ÓF 90 ogheimahöfn Ólafsfjörður. Akraberg ÓF 90 var selt … Halda áfram að lesa Akraberg AK 65 →

Guðni Ólafsson VE 606

2466. Guðni Ólafsson VE 606. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Línuskipið Guðni Ólafsson VE 606, sem sést hér nýkomið til landsins, var smíðað í Kína fyrir Ístún hf. í Vestmannaeyjum. Skipið kom til heimahafnar í fyrsta skipti um miðjan febrúar árið 2002. Í Morgunblaðinu fimmtudaginn 21. febrúar sagði m.a svo frá komu skipsins: Guðni Ólafsson VE 606, … Halda áfram að lesa Guðni Ólafsson VE 606 →

Baffin Bay brann og sökk í Vigo

IMO 8822416. Baffin Bay M1033. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Eldur kom upp í skuttogaranum Baffin Bay í gær þar sem hann lá í höfn í Vigo á Spáni. Hér má lesa frétt um atburðinn en togarinn sökk að lokum í höfninni. Og hér er önnur frétt um þetta. Meðfylgjandi mynd tók ég í Chapela við … Halda áfram að lesa Baffin Bay brann og sökk í Vigo →

Hörður Björnsson lét úr höfn í dag

264. Hörður Björnsson ÞH 260 ex Gullhólmi SH 201. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Línuskipið Hörður Björnsson ÞH 260 lét úr höfn á Húsavík í dag eftir að hafa landað og beðið af sér bræluna. Það er GPG Seafood ehf. sem gerir skipið út en það er með heimahöfn á Raufarhöfn. Upphaflega hét skipið Þórður Jónasson, … Halda áfram að lesa Hörður Björnsson lét úr höfn í dag →

Víkurberg SK 72

1866. Víkurbeg SK 72. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Þarna má sjá kallana á Víkurbergi SK 72 draga netin en báturinn var í eigu Víkufisks með heimahöfn í Haganesvík í Fljótum. Í jólablaði Einherja, sem var blað Kjördæmissambands framsóknarmanna á Norðurlandi vestra, árið 1987 sagði svo frá: Nýlega bættist nýr bátur í flota Fljótamanna, Víkurberg SK-72. Skrokkur bátsins, … Halda áfram að lesa Víkurberg SK 72 →

Ísleifur IV ÁR 463

250. Ísleifur IV ÁR 463 ex Ísleifur IV ÁR 66. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Ísleifur IV ÁR 463 var upphaflega VE 463 og var smíðaður í Noregi árið 1964 fyrir Ársæl Sveinsson útgerðarmann í Vestmannaeyjum. Báturinn var 216 brl. að stærð, búinn 450 hestafla Stork diesel aðalvél. Sumarið 1975 voru skráðir eigendur Ársæll Ársællsson Selfossi og … Halda áfram að lesa Ísleifur IV ÁR 463 →

Sænes EA 75

797. Sænes EA 75 ex Rikhard SK 77. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1986. Netabáturinn Sænes EA 75 er hér á miðunum úti fyrir Norðurlandi á vetrarvertíð. Hann var gerður út frá Dalvík árin 1982-1987. Upphaflega hét báturinn Straumnes ÍS 240 og var smíðaður árið 1959 í A-Þýskalandi fyrir Kögur h/f á Ísafirði. Hann var 94 brl. … Halda áfram að lesa Sænes EA 75 →