1825. Geiri Péturs ÞH 344 ex Rosvik. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1987. Geiri Péturs ÞH 344 við bryggju á Húsavík prýddur jólaljósum en myndin var tekin jólin 1987 en hann kom nýr til Húsavíkur það sumar. Reyndar ekki alveg nýr því hann var smíðaður árið 1984 en Korri h/f keypti hann til landsins sumarið 1987. Um … Halda áfram að lesa Geiri Péturs prýddur jólaljósum
Ný Cleopatra 50 til Englands, mun veiða humar í gidrur
Dylharis H101. Ljósmynd Trefjar 2020. Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi núna nýverið nýjan Cleopatra bát til Bridlington á austurströnd Englands. Að útgerðinni stendur Ben Woolford sjómaður frá Bridlington sem jafnframt er skipstjóri á bátnum. Nýi báturinn, sem er 30 BT að stærð, hefur hlotið nafnið Dylhàris og er af gerðinni Cleopatra 50. Í bátnum eru … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 50 til Englands, mun veiða humar í gidrur
Aron ÞH 105
1144. Aron ÞH 105. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Aron ÞH 105, sem var 11 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Guðmund A. Hólmgeirsson í Bátalóni hjá Hafnarfirði árið 1971. Báturinn var á Húsavík til ársins 1977 er hann var seldur til Ólafsfjarðar en þar hélt hann nafni sínu en varð ÓF 55. Raunar hét báturinn alla … Halda áfram að lesa Aron ÞH 105
Gnúpur seldur til Rússlands
1579. Gnúpur GK 11 ex Guðbjörg ÍS 460. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Frystitogarinn Gnúpur lagði úr höfn í Grindavík um hádegisbil í dag, að öllum líkindum í síðasta sinn en hann hefur verið seldur til Rússlands. Fyrst siglir Gnúpur til Hafnarfjarðar þar sem hann verður tekinn í slipp áður en hann fer utan. Gnúpur sem … Halda áfram að lesa Gnúpur seldur til Rússlands
Sólborg við bryggju
1359. Sólborg SU 202. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hér liggur Sólborg SU 202 við bryggju á Fáskrúðsfirði milli hátíða prýdd jólastjörnu. Myndin var tekin af Hreiðari Olgeirssyni um 1990. Báturinn hét upphaflega Sturlaugur II ÁR 7 og var smíðaður hjá Skipasmíðastöð Marsellíusar Bernharðssonar h.f. á Ísfirði og afhentur í febrúar árið 1974. Hann var 138 brl. … Halda áfram að lesa Sólborg við bryggju
Geiri Péturs á jólum
1207. Geiri Péturs ÞH 344 ex Sigurbergur GK 212. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Geiri Péturs hinn fyrsti prýddur jólaljósum í Húsavíkurhöfn um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Báturinn, sem var í eigu Korra hf., var í flota Húsvíkinga frá ársbyrjun 1980 fram á sumarið 1987. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana … Halda áfram að lesa Geiri Péturs á jólum
Skíði BA 666
6726. Skíði BA 666 ex Skíði EA 666. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Skíði BA 666 hefur alla tíð heitið þessu nafni en fyrstu 23 árin var hann EA 666. Smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1986. Heimahöfn hans Akureyri til ársins 2009 en það ár fær hann Patreksfjörð sem heimahöfn og gerður út af AK47 … Halda áfram að lesa Skíði BA 666
Viðey RE 6
1365. Viðey RE 6 ex Hrönn RE 10. Ljósmynd Sigtryggur Georgsson. Ekki svo langt síðan Viðey RE 6 birtist hér á síðunni í Grandalitunum en hér er hún í litum Hraðfrystistöðvarinnar í Reykjavík. Viðey sem áður hét Hrönn RE 10 var eitt fimm systurskipa sem smíðuð voru fyrir Íslendinga í Gdynia í Póllandi árið 1974. … Halda áfram að lesa Viðey RE 6
Vöttur SU 3
1125. Vöttur SU 3 ex Kristján Guðmundsson ÍS 177. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Á þessum myndum sést Eskifjarðarbáturinn Vöttur SU 3 koma að landi í Grindavík um árið. Báturinn var smíðaður hjá Einar S. Nielsen Mek. Verksted A/S í Harstad í Noregi og afhentur á árinu 1968. Upphaflega bar nafnið Palomar T-22-SA en árið 1970 keypti … Halda áfram að lesa Vöttur SU 3
Jón Kjartansson
155. Jón Kjartansson SU 111 ex Narfi RE 13. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Jón Kjartansson SU 111 liggur hér við bryggju á Eskifirði að haustlagi um miðjan níunda áratug síðsutu aldar. Jón Kjartansson hét upphaflega Narfi RE 13 og var smíðaður 1960 sem síðutogari í Nosbiskrug skipasmíðastöðinni í Rensburg í Vestur-Þýskalandi. Hann var smíðaður fyrir Guðmund … Halda áfram að lesa Jón Kjartansson









