2600. Grindvíkingur GK 606 ex Hardhaus II. Ljósmynd Sigmar Ingólfsson. Grindvíkingur GK 606 var keyptur frá Noregi árið 2003 af Þorbirni-Fiskanesi hf. í Grindavík. Grindvíkingur hét áður Hardhaus II og var 64,5 metra langur og 12,6 metra breiður. Smíðaður 1997. Vorið 2004 var Grindvíkingur GK 606 seldur til Vestmannaeyja þar sem hann fékk nafnið Guðmundur … Halda áfram að lesa Grindvíkingur GK 606
Vinna við nýja Börk á áætlun
2983. Börkur NK 122. Ljósmynd Karl Jóhann Birgisson 2020. Þeir Karl Jóhann Birgisson og Jóhann Pétur Gíslason vélstjóri hafa dvalið í Skagen í Danmörku í tvo og hálfan mánuð þar sem þeir hafa fylgst með framkvæmdum um borð í nýjum Berki sem er í smíðum hjá Karstensens Skibsværft. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir að þeir félagar … Halda áfram að lesa Vinna við nýja Börk á áætlun
Svanur og Dagfari á Raufarhöfn
1029. Svanur RE 45 - 1037. Dagfari GK 70. Ljósmynd Pétur Helgi Pétursson. Hér gefur að líta loðnubátana Svan RE 45 og Dagfara GK 70 þar sem þeir eru eitthvað að manúera í höfninni á Raufarhöfn. Það er reyndar skot út í loftið hjá mér að Dagfari sé GK þarna en ekki ÞH. Hann varð … Halda áfram að lesa Svanur og Dagfari á Raufarhöfn
Tunu GR-18-95
IMO 6721216. Tunu GR-18-95 ex Guðmndur VE 29. Ljósmynd Pétur Helgi Pétursson. Grænlenska loðnuskipið Tunu GR-18-95 er hér á siglingu en myndina tók Pétur Helgi Pétursson sem þá var skipverji á Björgu Jónsdóttur ÞH 321. Eins og glöggir menn sjá er hér kunnugt skip á ferðinni en síðasta nafn þess var Sturla GK 12 en … Halda áfram að lesa Tunu GR-18-95
Guðbjörg Steinunn GK 36
1236. Guðbjörg Steinunn GK 36 ex Ólafur Magnússon HU 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Guðbjörg Steinunn GK 37 stundaði rækjuveiðar úti fyrir Norðurlandi sumarið 2007 og hér sést hún koma að landi á Húsavík. Báturinn hét upphaflega Þórir GK 251, síðar Þórir SF 77 og smátíma Þórir II SF 777 áður en hann var keyptur … Halda áfram að lesa Guðbjörg Steinunn GK 36
Stormur GR6-44
IMO 9818632. Stormur GR6-44 ex Stormur RE 294. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson 2020. Þessi er sjóðheit en Jón Páll Ásgeirsson tók hana eftir hádegi í dag þegar verið var að færa Storminn á milli bryggja í Reykjavíkurhöfn. Línuskipið Stormur hefur legið við bryggju síðan það kom til landsins í desembermánuði árið 2017. Það var áður … Halda áfram að lesa Stormur GR6-44
Guðmundur Þór SU 121
1167. Guðmundur Þór SU 121 ex Gammur EA 177. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Guðmundur Þór SU 121 hét upphaflega Óskin ÁR 50 og var smíðaður í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1971. Árið 1973 hét báturinn orðið Árni GK 450 með heimahöfn í Sandgerði. Ekki stoppaði hann lengi á Suðurnesjunum því ári síðar var hann keyptur til Húsavíkur … Halda áfram að lesa Guðmundur Þór SU 121
Baldvin og Vilhelm Þorsteinssynir
2165. Baldvin Þorsteinsson EA 10 - 2410. Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2000. Þessi mynd var tekin sunnudag einn í byrjun septembermánaðar árið 2000 þegar fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson EA 11 kom til heimahafnar í fyrsta sinn. Frystitogarinn Baldvin Þorsteinsson EA 10 tók á móti honum og saman sigldu þeir um pollinn en Baldvin … Halda áfram að lesa Baldvin og Vilhelm Þorsteinssynir
Vestri BA 63
239. Vestri BA 63 ex Drangey SK 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér má sjá Vestra BA 63 frá Patreksfirði við bryggju í Hanarfirði á níunda áratug síðustu aldar. Upphaflega hét báturinn Fróðaklettur GK og var smíðaður hjá Ankerlökker Verft A/S í Florö í Noregi 1964. Hann mældist 251 brl. og var smíðaður fyrir Jón Gíslason … Halda áfram að lesa Vestri BA 63
Guðmunda Torfadóttir VE 80
2191. Guðmunda Torfadóttir VE 80 ex Olympe. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Guðmunda Torfadóttir VE 80 var smíðuð árið 1989 (afhentur í febrúar) fyrir Norðmenn hjá Slipen Mek- Verksted A/S, Sandnessöen í Noregi. Togarinn, sem upphaflega hét Stamsund, smíðanúmer 48 hjá stöðinni. Vinnslustöðin í vestmannaeyjum keypti skipið frá Frakklandi árið 1993 en þar bar það nafnið Olympe. … Halda áfram að lesa Guðmunda Torfadóttir VE 80









