2888. Auður Vésteins SU 88. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Jón Steinar tók þessar myndir nú undir kvöld af Auði Vésteins SU 88 leggja upp í róður frá Grindavík. Báturinn sem er gerður út af Einhamri Seafood er af gerðinni Cleopatra 50 og var smíðaður árið 2014. Hann er með heimahöfn á Stöðvarfirði. 2888. Auður … Halda áfram að lesa Auður Vésteins á útleið
Númi HF 62
1487. Númi HF 62 ex Númi KÓ 24. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Hvalaskoðunarbáturinn Númi HF 62 kemur hér til hafnar í Reykjavík sumarið 2010 en eins og glöggir síðulesarar sjá er hér um Stykkilshólmssmíði að ræða. Upphaflega hét báturinn Ásbjörg ST 7 frá Hólmavík en hún var síðust í röð 50 brl. bátana sem Skipavík … Halda áfram að lesa Númi HF 62
Vinnslustöðin hf. kaupir útgerðarfyrirtækið Hugin í Vestmannaeyjum
2411. Huginn VE 55. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Vinnslustöðin hf. hefur keypt Huginn ehf., útgerðarfélag í Vestmannaeyjum sem gerir út fjölveiðiskipið Hugin VE-55, ásamt aflaheimildum í síld, loðnu, kolmunna og makríl. Kaupsamningur var undirritaður í Eyjum á föstudaginn var, 29. janúar. Kaupverðið er trúnaðarmál kaupenda og seljenda. Vinnslustöðin átti fyrir 48% hlut í Hugin en … Halda áfram að lesa Vinnslustöðin hf. kaupir útgerðarfyrirtækið Hugin í Vestmannaeyjum
Komið að landi
2760. Karólína ÞH 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hér sést línubáturinn Karólína ÞH 100 koma að landi á Húsavík fyrir helgina og Halldór NS 302 lagstur að flotbryggju eftir löndun. Karólína ÞH 100 er í eigu Doddu ehf. á Húsavík og var smíðuð hjá Samtak í Hafnarfirði árið 2007. Báturinn er 11,94 metrar að lengd, … Halda áfram að lesa Komið að landi
Ljósfari RE 102
973. Ljósfari RE 102 ex Kári Sölmundarson RE 102. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Loðnubáturinn Ljósfari RE 102 er hér við bryggju í Sundahöfn vel hlaðið loðnu en myndin var tekin ca. 1985 Upphaflega hét báturinn Dagfari ÞH 40 og var smíðaður árið 1965 í Boizenburg A-Þýskalandi fyrir bræðurnar Stefán og Þór Péturssyni á Húsavík. Árið 1967 … Halda áfram að lesa Ljósfari RE 102
Dagur ÞH 110
7243. Dagur ÞH 110 ex Bára II SH 227. Ljósmynd Vigfús Markússon. Dagur ÞH 110 er gerður út frá Þórshöfn af Fles ehf. sem keypti bátinn frá Hellisandi árið 2017. Þar hét báturinn Bára SH 27 en síðustu mánuðina áður en hann var keyptur norður Bára II SH 227. Upphaflega hét báturinn Pegron SH 140 … Halda áfram að lesa Dagur ÞH 110
Guðrún Björg ÞH 60
462. Guðrún Björg ÞH 60 ex Geir ÞH 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1994. Ef ég man rétt voru þessar myndir teknar þegar Guðrún Björg ÞH 60 kom til heimahafnar á Húsavík í fyrsta skipti. Það ku hafa verið vorið 1994. Flóki ehf. keypti bátinn frá Þórshöfn þar sem hann hét Geir ÞH 150 en upphaflega … Halda áfram að lesa Guðrún Björg ÞH 60
Baldvin Njálsson GK 400
2182. Baldvin Njálsson GK 400 ex Rán HF 4. Ljósmynd Vigfús Markússon. Frystitogarinn Baldvin Njálsson GK 400 er í eigu Nesfisks í Garðinum og hefur verið svo frá árinu 2005. Togarinn var smíðaður í Vigó á Spáni 1990 (1991 segir sum staðar) fyrir Norðmenn og hét upphaflega Grinnøy. Keyptur til Seyðisfjarðar 1992 og kom fyrst … Halda áfram að lesa Baldvin Njálsson GK 400
Skálafell SH 240
1221. Skálafell SH 240. Ljósmynd Kristjánsson. Skálafell SH 240 var smíðað úr furu og eik árið 1972 á Siglufirði fyrir þá Gunnar Gunnarsson og Kristján Helgason í Ólafsvík. Myndin kemur úr safni Helga Kristjánssonar en Kristján faðir hans, annar eigenda, tók myndina. Báturinn, sem var tæpar 12 brl. að stærð búinn 108 hestafla Powa Marinevél, … Halda áfram að lesa Skálafell SH 240
Hólmaborg SU 11
1525. Hólmaborg SU 11 ex Eldborg HF 13. Ljósmynd Sigmar Ingi Ingólfsson 2003. Á þessum myndum má sjá loðnuskipið Hólmaborgu SU 11 sigla fram hjá Grindavík vorið 2003, sennilega á heimstími til Eskifjarðar með fullfermi af loðnu. Myndirnar tók Sigmar Ingi Ingólfsson þá skipverji á Erni KE 13. Hólmaborg SU 11 hét upphaflega Eldborg HF … Halda áfram að lesa Hólmaborg SU 11









