Arnþór í skverun um árið

189. Arnþór EA 16 ex Valdimar Sveinsson VE 22. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Arnþór EA 16 er þarna í skverun um árið í Slippstöðinni á Akureyri. Sandblásinn og síðan fengið bláa litinn. Liggur utan á Heimaey VE 1. Arnþór EA 16 hét upphaflega Skarðsvík SH 205 og var smíðaður fyrir Skarðsvík hf. á Hellissandi í Austur-Þýskalandi … Halda áfram að lesa Arnþór í skverun um árið →

Wilson Nice kom með trjáboli

IMO 9430959. Wilson Nice. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Wilson Nice liggur nú við Bökugarðinn á Húsavík  þar sem uppskipun á trjáboli fyrir PCC á Bakka fer fram. Wilson Nice er 123 metra langt og 17 metra breitt, smíðað árið 2010. Það mælist 6,118 GT að stærð. Skipið, sem siglir undir fána Möltu og með heimahöfn … Halda áfram að lesa Wilson Nice kom með trjáboli →

Eyrún EA 155

1094. Eyrún EA 155 ex Frosti II ÞH 220. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eyrún EA 155, sem hér kemur til hafnar í Þorlákshöfn, var gerð út frá Hrísey á fyrrihluta tíunda áratugs síðustu aldar. Báturinn var smíðaður í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. Hafnarfirði og lauk smíði hans árið 1969 en þá voru sjö ár síðan smíðin hófst. … Halda áfram að lesa Eyrún EA 155 →

Vestri BA 63 á Húsavík

182. Vestri BA 63 ex Grettir SH 104. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Rækjubáturinn Vestri BA 63 kom til Húsavíkur fyrir stundu en stoppaði stutt við. Hann er í þessum skrifuðu orðum nýfarinn úr höfn. Vestri hét upphaflega Sigurður Jónsson SU 150 og er gerður út af Vestra ehf. á Patresfirði. Haukur Sigtryggur sendi miða um … Halda áfram að lesa Vestri BA 63 á Húsavík →

KG fiskverkun kaupir útgerð Ólafs Bjarnasonar SH 137

1304. Ólafur Bjarnason SH 137 Ljósmynd Alfons Finnsson. Eigendur Valafells ehf. í Ólafsvík hafa komist að samkomulagi við KG Fiskverkun ehf. um kaup þess síðarnefnda á öllu hlutafé í Valafelli ehf. Samningar aðila eru gerðir með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Fiskifréttir greina frá en í tilkynningu frá KG Fiskverjun segir: KG Fiskverkun gerir út skipið … Halda áfram að lesa KG fiskverkun kaupir útgerð Ólafs Bjarnasonar SH 137 →

Húsavíkurhöfn í dag

Bátar við bryggju á Húsavík í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér koma myndir sem teknar voru um miðjan dag í dag eftir að vind fór að lægja við Skjálfanda. Það gekk á með úrhelli og hvassviðri í morgun, sjávarstaða var há og ölduhæð mikil. Við Húsavíkurhöfn í dag. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson. Með því að smella … Halda áfram að lesa Húsavíkurhöfn í dag →