Rurik kom með farm fyrir PCC

IMO 9375795. Rurik ex Rorichmoor. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Rurik kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum en skipið er með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Rurik siglir undir fána Antiqua og Barbadoseyja. Heimahöfn skipsins, sem smíðað var 2006, er Saint John’s. Skipið er 80 metra langt og 12 metra breitt. Það … Halda áfram að lesa Rurik kom með farm fyrir PCC →

Sæunn í fjárflutningum

7158. Sæunn ÞH 22 ex Þyrí. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessi mynd var tekin sl. laugardag þegar Sæunn ÞH 22 kom til hafnar á Húsavík með lömb sem höfðu haft sumarbeit í Lundey á Skjálfanda. Hér má sjá aðra mynd frá þessum fjárflutningum. Sæunn er í eigu Sævars Guðbrandssonar og er af Sómagerð. Hét áður Þyrí … Halda áfram að lesa Sæunn í fjárflutningum →

Jóhanna Gísladóttir í Reykjanesröstinni

2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Þegar Jóhanna Gísladóttir GK 357 var á siglingu til nýrrar heimahafnar í vikunni lá Jón Steinar fyrir henni og sendi drónann út þegar hún var að sigla í gegnum Reykjanesröstina. Og að sjálfsögðu var tekin hringur fyrir kappann og hér sjáum … Halda áfram að lesa Jóhanna Gísladóttir í Reykjanesröstinni →

Ný Jóhanna Gísladóttir kom til heimahafnar í dag

2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Nýtt skip bættist í flota Vísis hf. síðdegis í dag þegar skuttogarinn Jóhanna Gísladóttir GK 357 kom til heimahafnar í Grindavík. Vísir keypti togarann frá Vestmannaeyjum í sumar þar sem hann bar nafnið Bergur VE 44. Togarinn, sem hét upphaflega Westro, … Halda áfram að lesa Ný Jóhanna Gísladóttir kom til heimahafnar í dag →

Þórir í Reykjavíkurhöfn

91. Þórir SF 77 ex Helga RE 49. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þórir frá Hornafirði er hér í Reykjavíkurhöfn um árið, annað hvort að fara upp í slipp eða koma niður. Þinganes ehf. keypti Þóri SF 77 af Ingimundi h.f í Reykjavík en hann hét Helga RE 49 og var mikið aflaskip.  Þórir var smíðaður í … Halda áfram að lesa Þórir í Reykjavíkurhöfn →

Garpur SI 26

6158. Garpur SI 26 ex Garpur HU 58. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Handfærabáturinn Garpur SI 26 kemur hér til hafnar á Siglufirði síðastliðnum ágústmánuði. Garpur er gerður út af Guðbrandi J. Ólafssyni en báturinn var keyptur til Siglufjarðar haustið 2018. Hann var smíðaður árið 1980 og hét Kristín BA og var með heimahöfn á Reykhólum. … Halda áfram að lesa Garpur SI 26 →