Dreki HF 36

27. Dreki HF 36 ex Sigurjón GK 49. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Tappatogarinn Dreki HF 36 liggur hér við bryggju í Hafnarfirði en upphaflega hét hann Björgvin EA 311. Hann var einn 12 tapatogaranna sem smíðaðir voru í Austur-Þýskalandi fyrir Íslendinga. Dreki var seldur norður á Kópasker og kom til heimahafnar vorið 1987. Þá var búið … Halda áfram að lesa Dreki HF 36 →

Varðskipið Freyja verður gert út frá Siglufirði

Varðskipið Freyja. Teikning af heimasíðu Landhelgisgæslu Íslands. Bindandi samkomulagi hefur verið komið á varðandi kaup á varðskipinu Freyju á milli United Offshore Support GmbH og Landhelgisgæslu Íslands.  Í tilkynningu kemur m.a fram að Landhelgisgæslan og dómsmálaráðuneytið hafi í sameiningu tekið þá ákvörðun að heimahöfn varðskipsins Freyju verði Siglufjörður og njóti skipið þjónustu þar og á … Halda áfram að lesa Varðskipið Freyja verður gert út frá Siglufirði →

Votaberg SU 10

962. Votaberg SU 10 ex Gestur SU 160. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Votaberg SU 10 frá Eskifirði landaði oft á Húsavík þegar úthafsrækjuveiðin var sem mest en skipið var gert út af Eskju á Eskifirði. Upphaflega hét skipið Óskar Halldórsson RE 157 og var smíðaður í Zandaam í Hollandi fyrir Ólaf Óskarsson útgerðarmann í Reykjavík. Lesa meira hér.. … Halda áfram að lesa Votaberg SU 10 →

Sylvía leggur upp í hvalaskoðun

1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Sylvía leggur hér upp í hvalaskoðunarferð á Skjálfanda í dag en veðurblíða var við flóann fram eftir degi. Sylvía, sem er í eigu Gentle Giants, var smíðuð í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri 1976 fyrir Grenvíkinga og hét upphaflega Sigrún ÞH 169. Með því að … Halda áfram að lesa Sylvía leggur upp í hvalaskoðun →

Björgunarbáturinn Sjöfn

7850. Sjöfn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Björgunarbáturinn Sjöfn var smíðaður hjá Bátasmiðjunni Rafnari og afhentur björgunarsveitinni Ársæli í Reykjavík á haustmánuðum árið 2020. Þessi mynd var tekin fyrir viku í Hafnarfirði en báturinn er af gerðinni Rafn­ar 1100. Hann er 11 metra lang­ur og rist­ir aðeins 55 sentí­metra. Hann er knú­inn tveim­ur 300 hestafla, átta … Halda áfram að lesa Björgunarbáturinn Sjöfn →

Hvalaskoðunarbáturinn Eldey

2910. Eldey ex M/S Norreborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hvalaskoðunarbáturinn Eldey kemur hér til hafnar í Reykjavík á dögunum en báturinn er í eigu hvalaskoðunarfyrirtækisins Eldingar. Á vef fyrirtækisins segir m.a um Eldey: Eldey (áður þekkt sem M/S Sund Buss Erasmus) var byggð árið 1971 af Lindstölds Skips og Båtbyggeri A/S, Risør (Noregi) ásamt systurskipum … Halda áfram að lesa Hvalaskoðunarbáturinn Eldey →

Björgunarskipið Gísli Jóns

2967. Gísli Jóns. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Björgunarskipið Gísli Jóns frá Ísafirði kom til Hafnarfjarðar um síðustu helgi og þessi mynd tekin þá. Gísli Jóns er eitt af björgunarskipum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og var keyptur frá Noregi árið 2019. Það var smíðað árið 1990. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í … Halda áfram að lesa Björgunarskipið Gísli Jóns →