1357. Níels Jónsson EA 106 ex Arnarnes ÍS 133. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Hér er verið að landa úr netabátnum Níelsi Jónssyni EA 106 á Hauganesi í marsmánuði árið 2007. Báturinn hét upphaflega Arnarnes ÍS 133 og var smíðaður hjá Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri fyrir samnefnt fyrirtæki á Ísafirði. Hann var afhentur þann 2. … Halda áfram að lesa Landað úr Níelsi um árið
Skýjaborgin
2157. Skýjaborgin ÞH 118 ex Jón Eggert ÍS 32. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Hér bíða kallarnir á grásleppubátnum Skýjaborginni þess að Kalli í Höfða ÞH 234 ljúki löndun svo þeir komist undir kranann. Þetta var í aprílmánuði árið 2003 en Skýjaborgin ÞH 118 var keypt frá Bolungarvík árið 2002. Þar hét hann Jón Eggert ÍS … Halda áfram að lesa Skýjaborgin
Brimill SH 31
2093. Brimill SH 31 ex Svalur BA 120. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Brimill SH 31,sem hér sést koma til hafnar á Skagaströnd sumarið 2006, hét upphaflega Sigrún HU 46 og var smíðuð á Blönduósi árið 1990. Árið 1993 er hann seldur á Akranes þar sem hann fékk nafnið Maron AK 94. Árið 1997 er Maron … Halda áfram að lesa Brimill SH 31
Sæborgin í sleðanum
1475. Sæborg ÞH 55 ex Eyvindur KE 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Hérna er Sæborgin í sleðanum á leið upp í slippinn á Húsavík þar sem fyrir var Reynir GK 177. Þetta var um miðjan júnímánuð árið 2006 og Sæborgin í eigu Hraunútgerðarinnar ehf. á Húsavík þegar þarna var komið við sögu. Sæborg er í … Halda áfram að lesa Sæborgin í sleðanum
Hrönn ÞH 36
2450. Hrönn ÞH 36. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001. Hér er Hrönn ÞH 36 á Sjómannadeginum árið 2001 sem var einmitt fyrsti Sjómannadagurinn eftir að báturinn kom í flotann. Hrönn ÞH 36 var smíðuð hjá Trefjum árið 2000 fyrir Ingólf H. Árnason á Húsavík. Haustið 2006 kaupa Jón Ólafur Sigfússon og Hörður Eiríksson bátinn og nefna … Halda áfram að lesa Hrönn ÞH 36
Auður og Siggi
2376. Siggi Valli ÞH 44 - 2485. Auður Þórunn ÞH 344. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Hér liggur Auður Þórunn ÞH 344 utan á Sigga Valla ÞH 44 og bíður þess að komast undir kranann þegar búið er að landa úr þeim síðarnefnda. Það voru bræðurnir Olgeir, sem gerði út Sigga Valla, og Hermann og Kristján … Halda áfram að lesa Auður og Siggi
Við bryggju í Ólafsvík
Bátar við bryggju í Ólafsvík. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hér gefur að líta þrjá vertíðarbáta við bryggju í Ólafsvík, sennilega á vetravertíð 1983 en myndin hefur birst áður á síðunni. Allir tengdust þeir fiskverkuninni Hróa í Ólafsvík þegar myndin var tekin, Geiri Péturs ÞH 344 og Sigþór ÞH 100 lögðu upp hjá Hróa eins og fleiri … Halda áfram að lesa Við bryggju í Ólafsvík
Ocean Tiger á rækjuveiðum í ísnum við A-Grænland
IMO 9136383. Ocean Tiger R 38. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2022. Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á rækjutogaranum Reval Viking tók þessa mynd fyrir skömmu af Ocean Tiger R 38 þar sem þeir voru að veiðum í ísnum við Austur-Grænland. Ocean Tiger er í eigu Ocean Prawn A/S og var smíðaður árið 1997 í Noregi. Togarinn er með … Halda áfram að lesa Ocean Tiger á rækjuveiðum í ísnum við A-Grænland
Bjarni Ólafsson AK 70
2909. Bjarni Ólafsson AK 70 ex Fiskeskjer. Ljósmynd Þór Jónsson 2022. Loðnuskipið Bjarni Ólafsson AK 70 kemur hér að landi í Neskaupstað í gær en myndina tók Þór Jónsson á Djúpavogi. Skipið var keypt til landsins frá Noregi árið 2015 en það var smíðað árið 1999 og hét áður Fiskeskjer. Eigandi skipsins er Síldarvinnslan hf. … Halda áfram að lesa Bjarni Ólafsson AK 70
Sólbergið við Kleifarnar
2917. Sólberg ÓF 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Þær voru margar myndirnar sem ég tók þegar Sólberg ÓF 1 kom nýtt til landsins í maí mánuði árið 2017. Bæði á Ólafsfirði, þar sem þessi mynd var tekin og sýnir togarann með Kleifarnar í baksýn, og eins þegar hann kom til hafnar á Siglufirði. Kannski það … Halda áfram að lesa Sólbergið við Kleifarnar









