
Loðnuskipið Bjarni Ólafsson AK 70 kemur hér að landi í Neskaupstað í gær en myndina tók Þór Jónsson á Djúpavogi.
Skipið var keypt til landsins frá Noregi árið 2015 en það var smíðað árið 1999 og hét áður Fiskeskjer.
Eigandi skipsins er Síldarvinnslan hf. en það var Runólfur Hallfreðsson ehf. keypti skipið hingað á sínum tíma. Það er um 2000 brúttótonn að stærð, 67,4 metrar að lengd og 13 metrar að breidd.
Aðalvél er 7500 hestöfl af gerðinni Wartsila. Burðargeta skipsins er 1980 tonn og er unnt að kæla allan aflann.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution