Þórsnes við bryggju á Húsavík

2936. Þórsnes SH 109 ex Veidar 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Línu- og netaskipið Þórsnes SH 109 liggur hér við bryggju á Húsavík í lok júlímánaðar árið 2017. Þórsnes hafði komið til heimahafnar í Stykkishólmi í júní sama ár en það var keypt notað frá Noregi. Eigandi Þórsnes ehf. í Stykkishólmi. Þórsnesið er 880 brúttótonna línu- … Halda áfram að lesa Þórsnes við bryggju á Húsavík →

Loireborg á Húsavík

IMO 9399404. Loireborg við Bökugarðinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Flutningaskipið Loireborg kom til Húsavíkur í nótt með hráefnisfarm til kísilvers PCC á Bakka.  Skipið er 4,695 GT að stærð og var smíðað árið 2008. Lengd þess er 123 metrar og breiddin 14 metrar. Skipið siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Delfzijl. Með því að … Halda áfram að lesa Loireborg á Húsavík →

Grímsnes kemur að landi í gær

89. Grímsnes GK 555 ex Grímsnes BA 555. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Grímsnes GK 555 kemur hér að landi í Grindavík í gær en báturinn er gerður út af Maron ehf. til netaveiða. Það var fínasta veður en þegar að norðanáttin lendir á móti krappri sunnan bárunni getur hann orðið ansi úfinn eins og sjá … Halda áfram að lesa Grímsnes kemur að landi í gær →

Sighvatur í kröppum dansi

1416. Sighvatur GK 57 ex Sævík GK 257. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Línuskipið Sighvatur GK 57 lét úr höfn í Grindavík í dag í blíðuveðri, norðan 6 metrum. En þegar að norðanáttin lendir á móti krappri sunnan bárunni getur hann orðið ansi úfinn eins og sjá má á þessum flottu myndum sem Jón Steinar tók. 1416. … Halda áfram að lesa Sighvatur í kröppum dansi →

Sigurður VE 15

2883. Sigurður VE 15. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Jón Steinar tók þessa mynd af loðnuskipinu Sigurði VE 15 á dögunum þar sem það var á leið fyrir Reykjanesið. Ísfélag Vestmannaeyja lét smíða Sigurð VE 15 í Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbúl í Tyrklandi og kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum sumarið 2014. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Sigurður VE 15 →

Kristinn Friðrik GK 58

102. Kristinn Friðrik GK 58 ex Siggi Bjarna GK 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Vélbáturinn Kristinn Friðrik GK 58 kemur hér að landi í Sandgerði á vetrarvertíðinni árið 2004. Báturinn var gerður út af Skipeyri ehf. og var með heimahöfn í Garðinum. Haukur Sigtryggur sendi eftirfarandi miða: 0102....Hrafn Sveinbjarnarson II. GK 10. TF-UY. Skipasmíðastöð: Mandal … Halda áfram að lesa Kristinn Friðrik GK 58 →

Gísli Súrsson GK 8

2608. Gísli Súrsson GK 8. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Línubáturinn Gísli Súrsson GK 8 frá Grindavík kemur hér að bryggju á Húsavík sumarið 2009. Gísli Súrsson GK 8 var smíðaður árið 2003 hjá Trefjum í Hafnarfirði fyrir Útgerðarfélagið Einhamar í Grindavík (Einhamar Seafood). Báturinn, sem upphaflega var óyfirbyggður, er af gerðinni Cleopatra 38 og er … Halda áfram að lesa Gísli Súrsson GK 8 →