Sighvatur og Daðey á Húsavík um árið

975. Sighvatur GK 57 - 2617. Daðey GK 777. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Þessi mynd var tekin 16. október árið 2004 og sýnir línubátinn Daðey GK 777 koma til hafnar á Húsavík. Utan á Þvergarðinum liggur línuskipið Sighvatur GK 57 þar sem verið var að ísa hann eftir löndun. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Sighvatur og Daðey á Húsavík um árið →

Nýi Christian í Grótinum

IMO 9915430. Christian í Grótinum KG 690. Ljósmynd vonin.com 2022. Nýr Christian í Grótinum KG 690 er kominn í flota Færeyinga og er þetta einkar glæsilegt skip. Þessi mynd var tekin þegar skipið kom til Fuglafjarðar í dag að sækja veiðarfæri hjá Vónin P/F en myndin er fengin af Fésbókarsíðu fyrirtækisins og birt með leyfi … Halda áfram að lesa Nýi Christian í Grótinum →

Høgaberg FD-110 í Vestmannaeyjum

IMO 9686596. Høgaberg FD-110 ex Torbas. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2022. Færeyska uppsjávarveiðiskipið Høgaberg FD-110 kom til Vestmannaeyja undir kvöld og tók Tryggvi Sigurðsson þessa mynd. Skipið er í eigu útgerðarfélagsins Framherja og er með heimahöfn í Fuglafirði. Høgaberg hét upphaflega Torbas SF-4-V og var smíðað árið 2015. Það var selt til Færeyja árið 2017 og … Halda áfram að lesa Høgaberg FD-110 í Vestmannaeyjum →

Bátar við bryggju á Árskógssandi

Bátar við bryggju á Árskógssandi. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2000. Hér gefur að líta nokkra smábáta við bryggju á Árskógssandi árið 2000. Og einn á legunni. Við bryggjuna eru fv. Særún EA 251, Óli Lofts EA 23 og Kópur EA 325. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By … Halda áfram að lesa Bátar við bryggju á Árskógssandi →

Markus GR-6-84 á toginu

IMO: 9826706. Markus GR-6-84. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2022. Hér koma sjóðheitar myndir sem Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á Reval Viking tók í kvöld og sýnir grænlenska rækjutogaranum Markus GR-6-84. Þarna er hann að veiðum við A-Grænland og eins og sjá má í blíðskaparveðri. Reyndar fyrsti dagurinn í yfirstandandi veiðferð hjá Reval Viking sem það er logn og … Halda áfram að lesa Markus GR-6-84 á toginu →

Náttfari kemur úr hvalaskoðun í dag

993. Náttfari kemur úr hvalaskoðunarferð í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Norðursigling hóf á dögunum hvalaskoðunarvertíðina þetta árið og á þessari mynd sést Náttfari koma til hafnar í dag. Svona líka nýskveraður og fínn. Samkvæmt Fésbókarsíðu NS hefur vertíðin farið vel af stað og hnúfubakar sést í öllu ferðum til þessa. Náttfari hefur siglt með ferðamenn … Halda áfram að lesa Náttfari kemur úr hvalaskoðun í dag →