Björg Jónsdóttir ÞH 321

263. Björg Jónsdóttir ÞH 321 ex Gandí VE 171. Ljósmynd Pétur Jónasson. Á þessari ljósmynd Péturs Jónassonar gefur að líta Björgu Jónsdóttur ÞH 321 sem upphaflega hét Þorbjörn II GK 541 frá Grindavík. Báturinn var smíðaður árið 1964 fyrir Hraðfrystihús Þórkötlustaða h/f í Grindavík. Smíðin fór fram í Djupvík í Svíþjóð en báturinn var 168 brl. … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321 →

Capitan Demidenko

IMO:8907137. Capitan Demidenko MK-0556 ex Kristina. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2022. Þennan þekkja eflaust einhverjir en HB Grandi hf. keypti skipið árið 2004 og nefndi Engey RE 1. Í dag heitir það Kapitan Demidenko sem var reyndar upphaflega nafn togarans en áður en hann fékk Engeyjarnafnið hét hann Jason. Hólmgeir Austfjörð tók þessa mynd af togaranum … Halda áfram að lesa Capitan Demidenko →

Álftafell SU 100

1126. Álftafell SU 100 ex Villi í Efstabæ BA 214. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Álftafell SU 100 liggur hér við bryggju á Stöðvarfirði sumarið 2004 en þaðan gerði Kross ehf. bátinn út á árunum 2002 - 2007. Báturinn hét upphaflega Skálavík SU 500 og var smíðuð árið 1970 hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. fyrir Þjóðrek hf. … Halda áfram að lesa Álftafell SU 100 →

Hólmsteinn GK 20

573. Hólmsteinn GK 20 ex Hafdís GK 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hólmsteinn GK 20 kemur hér að landi í Sandgerði um árið og enn með gömlu brúna en kominn hvalbakur. Upphaflega hét báturinn Hafdís GK 20 og var smíðaður í Hafnarfirði árið 1946. Hann var 43 brl. að stærð og smíðaður hjá Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. … Halda áfram að lesa Hólmsteinn GK 20 →

Ísnes við bryggju á Húsavík

1804. Ísnes ex Dollart. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ísnes skip, Nesskipa hf., liggur hér viðð hafnargarðinn á Húsavík sem í dag er nefndur Norðurgarðurinn. Myndin er sennilega frá því um 1990 +. Ísnes var smíðað árið 1976 í Þýskalandi og var 2,978 GT að stærð. Skrifa var en kannski má segja er því frá árinu 2015 … Halda áfram að lesa Ísnes við bryggju á Húsavík →

Cuxhaven í Hafnarfjarðarhöfn

IMO 9782778. Cuxhaven NC 100. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. Maggi Jóns tók þessa mynd í Hafnarfirði í fyrradag þar sem verið var kara Cuxhaven hinn þýska fyrir veiðiferð á Grænlandsmið. Cuxhaven NC 100 er í eigu Deutsche Fischfang Union, dótturfélags Samherja í Þýskalandi.  Cuxhaven NC 100 sem hannaður er af Rolls Royce er 81,22 metrar að … Halda áfram að lesa Cuxhaven í Hafnarfjarðarhöfn →

Þórður Jónasson EA 350

264. Þórður Jónasson EA 350 ex Þórður Jónasson RE 350. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér siglir Þórður Jónasson EA 350 á Akureyrarpolli um árið en Akureyri var lengstum hans heimahöfn. Þórður Jónasson, sem smíðaður var í Noregi og kom til Akureyrar í júníbyrjun árið 1964, var upphaflega RE 350. Hann var smíðaður fyrir Valtý Þorsteinsson útgerðarmann … Halda áfram að lesa Þórður Jónasson EA 350 →

Tveir danskir

3030. Vestri BA 63 - 260. Garðar mætast á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Á þessari mynd sem tekin var í ágústmánuði í fyrra mætast tvær fleytur í mynni Húsavíkurhafnar. Og þær eiga amk. eitt sameiginlegt, það er smíðaland þeirra sem er Danmörk. Hvalaskoðunarbáturinn Garðar, sem þarna er á útleið, hét upphaflega Sveinbjörn Jakobsson SH … Halda áfram að lesa Tveir danskir →