Gleðilegt nýtt ár-Happy new year-Feliz año nuevo

2992. Baldvin Njálsson GK 400 í Hafnarfjarðarhöfn. Ljósmynd Magnús Jónsson. Skipamyndir.com óskar öllum þeim sem sækja síðuna heim gleðilegs nýs árs með þökk fyrir innlitið á því gamla sem nú er liðið í aldanna skaut. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you … Halda áfram að lesa Gleðilegt nýtt ár-Happy new year-Feliz año nuevo →

Þingey ÞH 51

1650. Þingey ÞH 51. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Þingey ÞH 51 var smíðuð árið 1983 í Bátasmiðjunni Vör á Akureyri fyrir Auðun Benediktsson útgerðarmann á Kópaskeri. Auðun gerði bátinn m.a út til rækjuveiða á Öxarfirði. Þingey er 12 brl að stærð og upphaflega búin 215 hestafla Caterpillarvél sem skipt var út fyrir aðra eins árið … Halda áfram að lesa Þingey ÞH 51 →

Sigrún GK 380

1173. Sigrún GK 380 ex Sæþór KE 70. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigrún GK 380 hét upphaflega Sæþór KE 70 og var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi. Hann var smíðaður fyrir útgerðarfélagið Sænes hf. í Keflavík og var afhentur í júnímánuði árið 1971. Báturinn var 49 brl. að stærð búinn 240 hestafla Kelvin aðalvél. Hann var … Halda áfram að lesa Sigrún GK 380 →

Ísfélag Vestmannaeyja og Rammi stefna að sameiningu

2917. Sólberg ÓF 1 flaggskip Ramma hf. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Stjórnir Ísfélags Vestmannaeyja hf. og Ramma hf. í Fjallabyggð hafa skrifað undir samkomulag um samruna félaganna. Sameinað félag mun heita Ísfélagið hf. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem félögin sendu frá sér í kvöld. Forsvarsmenn félaganna tveggja eru sammála um að mörg tækifæri séu … Halda áfram að lesa Ísfélag Vestmannaeyja og Rammi stefna að sameiningu →

Sólfell á síldveiðum

161. Sólfell EA 640 ex Ólafur Magnússon EA 250. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta Sólfelli EA 640 við síldveiðar inn á einum af fjörðum Austfjarða. Mig minnir á Berufirði og þetta var annað hvort haustið 1984 eða 1986. Sólfell EA 640 hét áður Ólafur Magnússon EA 250 en snemma árs 1983, keypti Njörður … Halda áfram að lesa Sólfell á síldveiðum →

Björn Jónsson ÞH 345

2390. Björn Jónsson ÞH 345 ex Jói Berg GK 33. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Björn Jónsson ÞH 345 kemur hér að bryggju á Raufarhöfn vorið 2007, úr grásleppuróðri. Báturinn var gerður út af Útgerðarfélaginu Röðli ehf. á Raufarhöfn. Báturinn var smíðaður fyrir Reyni Jóhannsson í Grindavík í Trefjum í Hafnarfirði árið 2000. Hann er af … Halda áfram að lesa Björn Jónsson ÞH 345 →

Smári ÞH 59

1533. Smári ÞH 59 ex Vigur SU 60. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Smári ÞH 59 kemur hér til hafnar á Húsavík eftir netaróður í byrjun febrúarmánaðar árið 2005. Báturinn var gerður út um tíma frá Húsavík eftir að hafa verið keyptur frá Djúpavogi haustið 2004. Hann var smíðaður í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1979 og … Halda áfram að lesa Smári ÞH 59 →

Grettir SH 104

182. Grettir SH 104 ex Ólafur Ingi KE 34. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Grettir SH 104 frá Stykkishólmi lætur hér úr höfn á Húsavík í nóvembermánuði árið 2004. Grettir hét upphaflega Sigurður Jónsson SU 150 og var smíðaður í Noregi 1963 og kom til heimahafnar á Breiðdalsvík í nóvember það ár. Grettir hét áður Ólafur Ingi KE … Halda áfram að lesa Grettir SH 104 →

Marietje Marsilla við Bökugarðinn

IMO 9458248. Marietje Marsilla. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hollenska flutningaskipið Marietje Marsilla kom til Húsavíkur að morgni annars í jólum og lagðist að Bökugarðinum. Skipið er með hráefnisfarm til PCC á Bakka og strax var hafist handa við uppskipun hans. Marietje Marsilla er með heimahöfn í Delfzijl og var smíðað í Hollandi árið 2010. Skipið … Halda áfram að lesa Marietje Marsilla við Bökugarðinn →