363. Maron GK 522 ex Maron HU 522. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Jón Steinar flaug drónanum í gær út að Maroni GK 522 þar sem báturinn var að draga netin út af Straumsvík. Kallarnir virtust vera að fiska vel á þessum elsta stálbát flotans sem enn er í drift. Maron hét upphaflega Búðafell SU 90 … Halda áfram að lesa Maron dregur netin út af Straumsvík
Karine H VL-62-AV
IMO: 9252515. Karine H VL-62-AV ex Atlantic Enterprice. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. Maggi Jóns tók þessar myndir af norska rækjutogaranum Karine H VL-62-AV í Hafnarfirði um helgina en hann hélt til veiða við Austur-Grænland. Togarinn var keyptur til Noregs í byrjun þessa árs en hann hét áður Atlantic Enterprice og var gerður út frá Kananda … Halda áfram að lesa Karine H VL-62-AV
Bjarnarey VE 501
1298. Bjarnarey VE 501. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Bjarnarey VE 501 var smíðuð hjá Slippstöðinni á Akureyri og afhent eigendum sínum í aprílmánuði árið 1973. Báturinn, sem var 152 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Hraðfrystistöðina í Reykjavík en heimahöfn hans Vestmannaeyjar. Bjarnarey var síðar yfirbyggð og seinna sleginn út að aftan. Hún varð síðar í … Halda áfram að lesa Bjarnarey VE 501
Fri Liepaja kom til Húsavíkur í dag
IMO 9344514. Fri Liepaja. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Flutningaskipið Fri Liepaja kom til Húsavík í dag og lagðist að Bökugarðinum hvar skipað verður upp hráefnisfarmi til PCC á Bakka. Skipið siglir undir írskum fána mepð heimahöfn í Arlow. Það var smíðað árið 2006 og mælist 2,999 Gt að stærð. Lengd þess er 90 metrar og … Halda áfram að lesa Fri Liepaja kom til Húsavíkur í dag
Kuldalegt við Húsavíkurhöfn
993. Náttfari leggur upp í hvalaskoðunarferð. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Það var kuldalegt við Húsavíkurhöfn í morgun þegar Norðursiglingarbáturinn Náttfari lagði upp í hvalaskoðunarferð út á Skjálfanda. Ekki hefur gefið til ferða síðustu daga og tækifærin því nýtt þegar veður leyfir. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. … Halda áfram að lesa Kuldalegt við Húsavíkurhöfn
Margrét EA 710
3038. Margrét EA 710 ex Christina S FR 224. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson 2023. Guðmundur St. Valdimarsson tók þessa mynd af nýjasti fiskiskipi flotans á loðnumiðunum í dag, Margréti EA 710. Eins og kom fram á síðunni í vikunni keypti Samherji skipið frá Skotlandi þar sem það bar nafnið Christina S FR 224. Þetta er … Halda áfram að lesa Margrét EA 710
Svalbakur
1352. Svalbakur EA 302 ex Stella Karina. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. ÚA togarinn Svalbakur EA 302 liggur hér við Torfunefsbryggju á Akureyri um árið en togarinn var smíðaður árið 1969. Útgerðarfélag Akureyringa keypti systurskipin Stellu Karinu og Stellu Kristinu frá Færeyjum árið 1973 og komu þau til heimahafnar á Akureyri í desember það ár. Skipin voru … Halda áfram að lesa Svalbakur
„Tvíburabátar“ afgreiddir til Lofoten í Noregi
Ørsvåg III N-94-V og Ørsvåg II N-93-V. Ljósmynd Trefjar 2023. Bræðurnir Tom-Kenneth og Kurth-Anders Slettvoll útgerðarmenn frá Kabelvåg í Lofoten fengu fyrir skömmu afhenta tvo nýja Cleopatra 33 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Um Tvíburabáta er að ræða og verða bræðurnir skipstjórar á bátunum. Nýju bátarnir heita Ørsvåg II og Ørsvåg III og eru … Halda áfram að lesa „Tvíburabátar“ afgreiddir til Lofoten í Noregi
Varðskipið Freyja
3011. V/S Freyja ex GH Endurance. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Jón Steinar tók þessar drónamyndir af varðskipinu Freyju í gær þegar skipið var á siglingu undan Stafnesi. Varðskipið Freyja er 86 metra langt og 20 metra breitt, smíðað árið 2010 og var keypt til Íslands árið 2021. 3011. V/S Freyja ex GH Endurance. Ljósmynd Jón Steinar 2023. … Halda áfram að lesa Varðskipið Freyja
Halldór Runólfsson NS 301
1581. Halldór Runólfsson NS 301. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1982. Halldór Runólfsson NS 301 frá Bakkafirði kemur hér að landi í Þorlákshöfn í aprílmánuði 1982. Hann var smíðaður í Bátalóni hf. í Hafnarfirði árið 1981 fyrir Hafnarbakka hf. á Bakkafirði. Báturinn er 29 brl. að stærð og heitir í dag Faxi og er gerður út til … Halda áfram að lesa Halldór Runólfsson NS 301









