2712. Lilja SH 16 ex Alda HU 112. Ljósmynd Vigfús Markússon. Lilja SH 16 hét upphaflega Kristinn SH 712 og var smíðuð fyrir Útgerðarfélagið Breiðuvík ehf. í Ólafsvík árið 2006. Báturinn er Cleopatra 38 frá Trefjum í Hafnarfirði og mælist 15 BT að stærð. Árið 2009 fékk hann nafnið Kristinn II en áfram SH 712. … Halda áfram að lesa Lilja SH 16
Flokkur: Smábátar
Nýr Einar Guðnason ÍS 303 til Suðureyrar
2997. Einar Guðnason ÍS 303. Ljósmynd Trefjar 2021. Útgerðarfélagið Norðureyri ehf. á Suðureyri fékk í síðustu viku afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 50 beitningavélarbát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Íslandssaga ehf. tekur við afla bátsins og er einn eigandi Norðureyrar. Framkvæmdastjóri Íslandsögu ehf. er Óðinn Gestsson. Báturinn heitir Einar Guðnason ÍS 303 og er 15 metrar … Halda áfram að lesa Nýr Einar Guðnason ÍS 303 til Suðureyrar
Enok AK 8
1666. Enok AK 8 ex Stapavík AK 132. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1999. Enok AK 8, sem hér kemur að landi í Grindavík vorið 1999, var smíðaður árið 1983 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd. Upphaflega hét báturinn Stakkur RE 186 og var 11,63 brl. að stærð, búinn 115 hestafla G.M vél. Eigendur Sæmundur Rögnvaldsson og … Halda áfram að lesa Enok AK 8
Árni Jónsson KE 109
1958. Árni Jónsson KE 109 ex Patrekur BA 66. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1999. Línubáturinn Árni Jónsson KE 109 kemur hér að landi í Grindavík í aprílmánuði árið 1999. Báturinn var smíðaður 1988 í Svíþjóð og hét upphaflega Mikley SF 128. Í Dagblaðinu Vísi kom þessi frétt þann 28. desember 1988: Nýr bátur, Mikley SF 128, … Halda áfram að lesa Árni Jónsson KE 109
Diddó ÍS 232
369. Diddó ÍS 232 ex Diddó RE 232. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Diddó ÍS 232 hét alla tíð þessu nafni en upphaflega var hann Diddó BA 45 með heimahöfn á Patreksfirði. Báturinn, sem var 8 brl. að stærð, var smíðaður úr furu og eik í Bátalóni í Hafnarfirði fyrir Þorstein Friðþjófsson á Patreksfirði. Hann var búinn … Halda áfram að lesa Diddó ÍS 232
Rán ÞH 141
6501. Rán ÞH 141 ex Gæsi NS 77. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rán ÞH 141, sem var í eigu Smára Gunnarssonar á Húsavík, var smíðuð í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1983 og hét upphaflega Máni RE 173. Á árunum 1985 til 1987 var báturinn á Húsavík undir nafninu Dísa ÞH 374 en þaðan fór hann … Halda áfram að lesa Rán ÞH 141
Kristín nýkomin úr skveringu
2461. Kristín ÞH 15 ex Elvis GK 60. Ljósmynd Hörður Ingimar Þorgeirsson 2021. Raufarhafnarbáturinn Kristín ÞH 15 er komin heim eftir að hafa verið í skveringu á Siglufirði að undanförnu. Það Rán ehf. sem gerir bátinn út en að því fyrirtæki stendur Hörður Ingimar Þorgeirsson. Hörður keypti bátinn frá Grindavík sumarið 2015. Þar hét hann … Halda áfram að lesa Kristín nýkomin úr skveringu
Mávur SI 96
2795. Mávur SI 96 ex Ingunn Sveinsdóttir AK 91. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2015. Mávur SI 96 hét upphaflega Ingunn Sveinsdóttir AK 91 og var smíðuð árið 2010 hjá Siglufjarðar-Seig fyrir Harald Böðvarsson & co ehf. á Akranesi. Báturinn, sem er 14,77 BT að stærð, var seldur Siglunesi hf. á Siglufirði árið 2012. Árið 2015 var … Halda áfram að lesa Mávur SI 96
Knarrarnes KE 399
1251. Knarrarnes KE 399 ex Knarrarnes EA 399. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Knarrarnes KE 399 sem hér sést koma að landi í Sandgerði var smíðað í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1972. Báturinn, sem var 11 brl. að stærð, hét alla tíð Knarrarnes. Hann var upphaflega GK 157 og smíðaður fyrir Indriða Kristinsson og Guðjón Indriðason í … Halda áfram að lesa Knarrarnes KE 399
Lundey ÞH 350
1382. Lundey ÞH 350 ex Svala NK 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Lundey ÞH 350 hét upphaflega Kópur SI 7 og var 6 brl. að stærð, smíðaður af Sigurði Konráðssyni á Siglufirði árið 1974. Árið 1975 seldi Sigurður bátinn til Hríseyjar þar sem hann hélt nafni sínu en varð EA 274. Kaupandi var Örn Snorrason. Guðmundur … Halda áfram að lesa Lundey ÞH 350









