1390. Jón Guðmundsson ÍS 75 ex Vopni NS 65. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Jón Guðmundsson ÍS 75 sést hér koma til hafnar í Sandgerði um árið en báturinn var smíðaður í Bátalóni árið 1973. Upphaflega hét hann Vopni NS 65 og var smíðaður fyrir Vopna hf. á Vopnafirði. Báturinn, sem var 11 brl. að stærð, var … Halda áfram að lesa Jón Guðmundsson ÍS 75
Flokkur: Smábátar
Ásborg RE 15
1185. Ásborg RE 15 ex Guðmundur Arnar KE 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ásborg RE 15 hét upphaflega Ásgeir ÞH 198 og var smíðaður fyrir Þórð Ásgeirsson og Magnús Andrésson á Húsavík. Smíðin fór fram í Skipasmíðastöð Austfjarða hf. á Seyðisfirði og var báturinn, sem var 12 brl. að stærð, afhentur árið 1971. Ásgeir ÞH 198 … Halda áfram að lesa Ásborg RE 15
Sæbjörg í slipp á Akureyri
1132. Sæbjörg EA 184 ex Sæljón SH 9. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1984. Hér var verið að skvera Sæbjörgu EA 184 frá Grímsey í slippnum á Akureyri vorið 1984. Sæbjörg hét upphaflega Sæljón BA 100 og var smíðuð í Bátalóni fyrir Breið hf. á Patreksfirði árið 1970. Sumarið 1971 var Sæljónið selt til Ólafsvíkur og varð … Halda áfram að lesa Sæbjörg í slipp á Akureyri
Björn Jónsson ÞH 345
7456. Björn Jónsson ÞH 345 ex Hilmir ST 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2014. Grásleppubáturinn Björn Jónsson ÞH 345 frá Raufarhöfn kemur hér að landi á Húsavík þann 5. maí árið 2014. Doddi Ásgeirs ehf. á Húsavík gerði bátinn út þessa grásleppuvertíðina en hann var í eigu Útgerðarfélagsins Röðuls ehf. á Raufarhöfn. Þórður Birgisson skipstjóri og … Halda áfram að lesa Björn Jónsson ÞH 345
Elín ÞH 82
2392. Elín ÞH 82 ex Særós GK 208. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Elín ÞH 82 frá Grenivík var smíðuð hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 2000 og hét upphaflega Inga Hrund ÁR 388. Eigandi Útgerðarfélagið Saga ehf. í Þorlákshöfn. Elín ÞH 82 er í eigu Elínar ÞH 82 ehf. en báturinn var keyptur til Grenivíkur frá … Halda áfram að lesa Elín ÞH 82
Óskar og Aron við bryggju
2163. Óskar ÞH 234 - 7361. Aron ÞH 105. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Hér liggja Óskar ÞH 234 og Aron ÞH 105 við bryggju á Húsavík en myndin var tekin að kveldi annars dags jóla. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you … Halda áfram að lesa Óskar og Aron við bryggju
Þráinn ÞH 2 í Húsavíkurhöfn
5357. Þráinn ÞH 2 ex Leiknir SI 33. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þráinn ÞH 2 er hér að færa sig til eftir löndun, Pálmi við stýrið og Benni klár með endann. Um Þráinn, sem var smíðaður á Siglufirði árið 1972, má lesa hér en báturinn var í eigu bræðranna Pálma og Benedikts Héðinssona á Húsavík. Með … Halda áfram að lesa Þráinn ÞH 2 í Húsavíkurhöfn
Sólveig ÞH 226
5499. Sólveig ÞH 226 ex Sævar ÞH 136. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sólveig ÞH 226 hét upphaflega Sævar ÞH 136 og var smíðuð af Baldri Halldórssyni á Hlíðarenda við Akureyri árið 1970. Báturinn, sem var tæpar 7 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Hörð Þorfinnsson á Húsavík sem átti hann til ársins 1978. Þá kaupa Sæavr … Halda áfram að lesa Sólveig ÞH 226
Bjargey EA 79
2024. Bjargey EA 79 ex Bjargey BA 129. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Bjargey EA 79 hét upphaflega Bjargey II EA 87 og var í eigu Óla Bjarna Ólasonar í Grímsey, smíðuð í Noregi árið 1988. Bjargey, sem var af Viksundgerð, var seld til Króksfjarðarness árið 1994 og varð Bjargey BA 129. En hún var komin aftur … Halda áfram að lesa Bjargey EA 79
Aron ÞH 105
1144. Aron ÞH 105. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Aron ÞH 105, sem var 11 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Guðmund A. Hólmgeirsson í Bátalóni hjá Hafnarfirði árið 1971. Báturinn var á Húsavík til ársins 1977 er hann var seldur til Ólafsfjarðar en þar hélt hann nafni sínu en varð ÓF 55. Raunar hét báturinn alla … Halda áfram að lesa Aron ÞH 105









