Wilson North kom til Húsavíkur

IMO 9430947. Wilson North. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Flutningaskipið Wilson North kom til hafnar á Húsavík nú undir kvöld og lagðist að Bökugarðinum. Skipið, sem er 123 metrar á lengd og 16 metra breitt, kom með trjáboli til PCC á Bakka. Það mælist 6,118 GT að stærð. Wilson North var smíðað árið 2010 og siglir undir … Halda áfram að lesa Wilson North kom til Húsavíkur →

Hrímbakur EA 306

1473. Hrímbakur EA 306 ex Bjarni Herjólfsson ÁR 200. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson 1991. ÚA togarinn Hrímbakur EA 306 er hér á miðunum árið 1991 en myndina tók Olgeir Sigurðsson. Togarinn hét upphaflega Bjarni Herjólfsson ÁR 200 og var smíðaður í Póllandi árið 1977. Hrímbakur EA 306 var 488 brl. að stærð búinn 2200 hestafla Sulser aðalvél. … Halda áfram að lesa Hrímbakur EA 306 →

Páll Jónsson

2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Línuskipið Páll Jónsson GK 7 er hér á útleið frá Grindavík á dögunum en myndina tók Jón Steinar. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher resolution

Hrafn GK 111 farinn áleiðis í pottinn

1401. Hrafn GK 111 ex Ágúst GK 95. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Síðdegis í gær 11. maí, á lokadegi vetrarvertíðar, sigldi línuskipið Hrafn GK 111 út frá Grindavík áleiðis til Ghent í Belgíu þar sem hann fer í pottinn víðfræga. Hrafn GK 111 hét upphaflega Gullberg VE 292 og var smíðaður hjá Baatservice Verft A/S … Halda áfram að lesa Hrafn GK 111 farinn áleiðis í pottinn →

Stefán Rögnvaldsson HU 345

616. Stefán Rögnvaldsson HU 345 ex Stefán Rögnvaldsson EA 345. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Stefán Rögnvaldsson HU 345 við bryggju á Húsavík sumarið 2009 en þá stundaði báturinn úthafsrælkjuveiðar úti fyrir norðurlandi. Báturinn hét upphaflega Jón Guðmundsson KE 4 og var smíðaður í Þýskalandi 1960 Hér má lesa nánar um bátinn en útgerðarfélagið Stefán Rögnvaldsson ehf. var … Halda áfram að lesa Stefán Rögnvaldsson HU 345 →

Ný Lilja ÞH 21

6969. Lilja ÞH 21 ex Manni NS 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarrsson 2022. Strandveiðibáturinn Lilja ÞH 21 kom til Húsavíkur í gærkveldi eftir siglingu frá Akureyri. Bjarni Eyjólfsson keypti bátinn frá Vopnafirði í fyrra en þar bar hann nafnið Manni NS 50. Lilja er af Sómagerð, smíðuð hjá Bátasmiðju Guðmundar hf. í Hafnarfirði árið 1987. Báturinn … Halda áfram að lesa Ný Lilja ÞH 21 →