89. Grímsnes GK 555 ex Grímsnes BA 555. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Grímsnes GK 555 kemur hér að landi í Grindavík í gær en báturinn er gerður út af Maron ehf. til netaveiða. Það var fínasta veður en þegar að norðanáttin lendir á móti krappri sunnan bárunni getur hann orðið ansi úfinn eins og sjá … Halda áfram að lesa Grímsnes kemur að landi í gær
Flokkur: Bátar
Sighvatur í kröppum dansi
1416. Sighvatur GK 57 ex Sævík GK 257. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Línuskipið Sighvatur GK 57 lét úr höfn í Grindavík í dag í blíðuveðri, norðan 6 metrum. En þegar að norðanáttin lendir á móti krappri sunnan bárunni getur hann orðið ansi úfinn eins og sjá má á þessum flottu myndum sem Jón Steinar tók. 1416. … Halda áfram að lesa Sighvatur í kröppum dansi
Kristinn Friðrik GK 58
102. Kristinn Friðrik GK 58 ex Siggi Bjarna GK 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Vélbáturinn Kristinn Friðrik GK 58 kemur hér að landi í Sandgerði á vetrarvertíðinni árið 2004. Báturinn var gerður út af Skipeyri ehf. og var með heimahöfn í Garðinum. Haukur Sigtryggur sendi eftirfarandi miða: 0102....Hrafn Sveinbjarnarson II. GK 10. TF-UY. Skipasmíðastöð: Mandal … Halda áfram að lesa Kristinn Friðrik GK 58
Erlingur í slipp í Neskaupstað
1379. Erlingur SF 65 ex Haförn EA 955. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Hér má sjá Erling SF 65 þar sem hann er í slipp í Neskaupstað sumarið 2004 en þegar þarna var komið við sögu var hann í eigu Skinneyjar-Þinganess hf. á Höfn. Hér má lesa sögu bátsins en hann hét upphaflega Kópanes BA 99. … Halda áfram að lesa Erlingur í slipp í Neskaupstað
Valdimar SH 106
1487. Valdimar SH 106 ex Alli Júl ÞH 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Rækjubáturinn Valdimar SH 106 frá Grundarfirði liggur hér við bryggju á Húsavík sumartið 2003. Valdimar, sem var í eigu Snæfells ehf., hét upphaflega Ásbjörg ST 9 og var smíðaður í Stykkishólmi árið 1977.Lesa má um sögu bátsins hér. Með því að smella … Halda áfram að lesa Valdimar SH 106
Þorvarður Lárusson SH 129
185. Þorvarður Lársusson SH 129 ex Sigþór ÞH 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Rækjubáturinn Þorvarður Lárusson SH 129 liggur hér í höfn á Dalvík í júníbyrjun árið 2004. Hann var í eigu Snæfells ehf. sem keypti hann í ársbyrjun 2002. Upphaflega Sigurpáll GK 375 sem var smíði no.46. frá Marstrands Mekaniska Verkstad A/B. í Marstrand … Halda áfram að lesa Þorvarður Lárusson SH 129
Stokksey ÁR 40
1037. Stokksey GK 40 ex Dagfari GK 70. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Stokksey ÁR 40 kemur að bryggju á Húsavík vorið 2003 en báturinn var á netum ef minnið er rétt. Upphaflega Dagfari ÞH 70 smíðaður fyrir Barðann hf. á Húsavík í Boizenburg í Austur-Þýskalandi. Hann kom til heimahafnar á Húsavík 17, maí árið 1967. … Halda áfram að lesa Stokksey ÁR 40
Sæfari ÁR 170
1964. Sæfari ÁR 170 ex Grundfirðingur SH 24. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Sæfari ÁR 170 frá Þorlákshöfn var á rækju sumarið 2012 og kom þá nokkrum sinnum til Húsavíkur. Þessi mynd var tekin í byrjun júnímánaðar það ár og eitthvað bras með rækjutrollið varð til þess að þeir komu í land kallarnir. Sæfari ÁR 170 … Halda áfram að lesa Sæfari ÁR 170
Akurey SF 31
1013. Akurey SF 31 ex Þórkatla II GK 197. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1987. Þessi mynd var tekin haustið 1987 ef minnið er rétt því þá keypti Borgey hf. á Honafirði Þórkötlu II GK 197 og nefndi Akurey SF 31. Gæti verið að báturinn hafi farið í Njarðvíkurslippinn til að fá græna litinn og sé að … Halda áfram að lesa Akurey SF 31
Jón á Hofi ÁR 62
1562. Jón á Hofi ÁR 62 ex Saukko III. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Jón á Hofi ÁR 62 var keyptur til landsins frá Finnlandi árið 1980 og kom til landsins í byrjun nóvembermánaðar það ár. Það var Glettingur hf. í Þorlákshöfn sem keypti skipið sem var 276 brl. að stærð. Í 3. tbl. Ægis 1981 sagði … Halda áfram að lesa Jón á Hofi ÁR 62









