
Hér birtast myndir af Fanney ÞH 130 í skemmtilsiglingu á Sjómannadeginum árið 1977.
Fanney ÞH 130, var í eigu Sigurbjörns Kristjánssonar, Sigtryggs Kristjánssonar og Ívars Júlíussonar á Húsavík. Hún var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri og afhent 1. október árið 1975.
Hún var og er 22 brl. að stærð og er í eigu Sölkusiglinga á Húsavík í dag.
Myndirnar eru úr safni Péturs Jónassonar ljósmyndara.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution