1102. Reginn ÁR 228 ex Reginn HF 228. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2022. Reginn Ár 228 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn en myndina tók Sigurður Davíðsson skipverji á Steinunni SF 10 í morgun. Reginn hét upphaflega Símon Olsen ÍS 33 og var smíðaður 1970 í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði. Hefur einnig borið nöfnin … Halda áfram að lesa Reginn ÁR 228
Flokkur: Bátar
Fjölnir GK 157
1136. Fjølnir GK 157 ex Ocean Breeze GK. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Jón Steinar tók þessa mynd af línuskipinu Fjölni GK 157 um helgina þegar skipið kom til Grindavíkur. Fjølnir var smíðaður í Mandal í Noregi 1968 en keypt til Íslands og kom það til heimahafnar á Skagaströnd í desember 1970. Þá hét það Skrolsvik T-84-TN en … Halda áfram að lesa Fjölnir GK 157
Hans Jakob GK 150
1639. Hans Jakob GK 150 ex Dalaröst GK 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Hans Jakob GK 150 kemur hér til hafnar í Grindavík í marsmánuði árið 2009 en hann var gerður út af PEG ehf. með heimahöfn í Sandgerði. Báturinn var smíðaður í Noregi 1978 en keyptur til landsins fjórum árum seinna og hét þá … Halda áfram að lesa Hans Jakob GK 150
Sighvatur og Daðey á Húsavík um árið
975. Sighvatur GK 57 - 2617. Daðey GK 777. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Þessi mynd var tekin 16. október árið 2004 og sýnir línubátinn Daðey GK 777 koma til hafnar á Húsavík. Utan á Þvergarðinum liggur línuskipið Sighvatur GK 57 þar sem verið var að ísa hann eftir löndun. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Sighvatur og Daðey á Húsavík um árið
Keilir SI 145
1420. Keilir SI 145 ex Keilir GK 145. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Keilir SI 145 frá Siglufirði kom til Húsavíkur þann 27. september árið 2004 og tók ég þessar myndir þá. Ekki er ég alveg viss um erindið en minnir að það hafi nú aðallega verið að ná í Hödda vin minn (Hörð Harðarson) sem … Halda áfram að lesa Keilir SI 145
Landað úr Níelsi um árið
1357. Níels Jónsson EA 106 ex Arnarnes ÍS 133. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Hér er verið að landa úr netabátnum Níelsi Jónssyni EA 106 á Hauganesi í marsmánuði árið 2007. Báturinn hét upphaflega Arnarnes ÍS 133 og var smíðaður hjá Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri fyrir samnefnt fyrirtæki á Ísafirði. Hann var afhentur þann 2. … Halda áfram að lesa Landað úr Níelsi um árið
Sæborgin í sleðanum
1475. Sæborg ÞH 55 ex Eyvindur KE 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Hérna er Sæborgin í sleðanum á leið upp í slippinn á Húsavík þar sem fyrir var Reynir GK 177. Þetta var um miðjan júnímánuð árið 2006 og Sæborgin í eigu Hraunútgerðarinnar ehf. á Húsavík þegar þarna var komið við sögu. Sæborg er í … Halda áfram að lesa Sæborgin í sleðanum
Við bryggju í Ólafsvík
Bátar við bryggju í Ólafsvík. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hér gefur að líta þrjá vertíðarbáta við bryggju í Ólafsvík, sennilega á vetravertíð 1983 en myndin hefur birst áður á síðunni. Allir tengdust þeir fiskverkuninni Hróa í Ólafsvík þegar myndin var tekin, Geiri Péturs ÞH 344 og Sigþór ÞH 100 lögðu upp hjá Hróa eins og fleiri … Halda áfram að lesa Við bryggju í Ólafsvík
Þórsnes við bryggju á Húsavík
2936. Þórsnes SH 109 ex Veidar 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Línu- og netaskipið Þórsnes SH 109 liggur hér við bryggju á Húsavík í lok júlímánaðar árið 2017. Þórsnes hafði komið til heimahafnar í Stykkishólmi í júní sama ár en það var keypt notað frá Noregi. Eigandi Þórsnes ehf. í Stykkishólmi. Þórsnesið er 880 brúttótonna línu- … Halda áfram að lesa Þórsnes við bryggju á Húsavík
Valdimar leggur í´ann
2354. Valdimar GK 195 ex Vesturborg GK 195. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Línuskipið Valdimar GK 195 leggur hér upp í róður frá Grindavík í gær. Veður var gott en þegar að norðanáttin lendir á móti krappri sunnan bárunni getur hann orðið ansi úfinn eins og sjá má á þessum flottu myndum sem Jón Steinar tók. … Halda áfram að lesa Valdimar leggur í´ann









