Bátar í Hafnarfjarðarhöfn

Bátar í Hafnarfjarðarhöfn. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar tók þessa fallegu vetrarmynd við Hafnarfjarðarhöfn um síðustu helgi. Hún sýnir báta við bryggju og þar fer fyrir miðri mynd Þorsteinn ÞH 115 frá Raufarhöfn. Fyrir innan hann er Jökull SK 16 og utan á honum er Gullfari HF 290. Aftan við Jökul er Drífa GK … Halda áfram að lesa Bátar í Hafnarfjarðarhöfn →

Ný Cleopatra 50B til Noregs

Einar N-31-Ø. Ljósmynd Trefjar 2019. Ólafur F. Einarsson útgerðarmaður á Myre í Noregi fékk á dögunum afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 50B beitningavélarbáta frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Ólafur var lengi í útgerð hér á landi ásamt föður sínum og föðurbróður, en fluttist til Noregs fyrir nokkrum árum. Nýi báturinn heitir Einar og er 15 metrar … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 50B til Noregs →

Hilmir ST 1

565. Hilmir ST 1 ex Hilmir GK 498. Hilmir ST 1 kemur hér til löndunar á Húsavík sumarið 1993 að mig minnir. Báturinn var þá á úthafsrækjuveiðum. Hilmir, sem hét alla tíð Hilmir, var smíður í Dráttarbraut Keflavíkur h/f árið 1942 og hafði smíðanúmer 1 hjá stöðinni. Hann var smíðaður fyrir Sigurbjörn Eyjólfsson í Keflavík … Halda áfram að lesa Hilmir ST 1 →

Hersir HF 227

1626. Hersir HF 227 ex Hafrenningur GK 38. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. 28. júní 1982 bættist í íslenska fiskiskipaflotann, skip sem keypt var notað frá Danmörku. Skip þetta hét upphaflega Michelle Cherie og er smíðað hjá Sakskbing Maskinfabrikk og Skibsværft í Danmörku árið 1976 og er smíðanúmer 20. Þegar skipið kom til landsins varþað keypt af … Halda áfram að lesa Hersir HF 227 →

Einar Guðnason ÍS 303 á strandstað við Gölt

2907. Einar Guðnason ÍS á strandstað við Gölt. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson 14. nóvember 2019. Guðmundur St. Valdimarsson bátsmaður á v/s Tý tók þessar myndir af Einari Guðnasyni ÍS 303 á strandstað við Gölt í mynni Súgandafjarðar. Einar Guðnason ÍS 303 var að koma úr línuróðri skömmu fyrir miðnætti í 13. nóvember þegar strandið varð. … Halda áfram að lesa Einar Guðnason ÍS 303 á strandstað við Gölt →

Hagbarður TH 1

538. Hagbarður TH 1. Ljósmynd Steingrímur Árnason. Hagbarður TH 1 frá Húsavík kemur hér til hafnar á Raufarhöfn drekkhlaðinn af síldarmiðunum. Myndina tók Steingrímur Árnason, Steini á Fossi, en hann var vélstjóri á bátum frá Húsavík. Hagbarður TH 1 var smíðaður í Reykjavík árið 1946 og eigandi hans Húsavíkurhreppur. Báturinn var 47 brl. að stærð … Halda áfram að lesa Hagbarður TH 1 →

Vestmannaey og Bergey á Akureyri

2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hér koma myndir af Vestmannaey VE 54 og Bergey VE 144 sem teknar voru á Akureyri með um fimm vikna millibilli. Myndin af Vestmannaey VE 54 var tekin þann 4. október sl. en Bergeyjarmyndin í fyrradag, 12. nóvember. 2964. Bergey VE 144. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Svo … Halda áfram að lesa Vestmannaey og Bergey á Akureyri →