Njáll ÓF 275 kom til hafnar á Húsavík

Njáll ÓF 275 ex Njáll RE 275. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Dragnótabáturinn Njáll ÓF 275 kom til hafnar á Húsavík síðdegis í dag en hann hafði verið að veiðum á Skjálfanda. Njáll ÓF 275 var smíðaður í Bátalóni hf.í Hafnarfirði árið 1980 og var með smíðanúmer 460 frá stöðinni. Smíðaður fyrir Sjóla hf. í Reykjavík … Halda áfram að lesa Njáll ÓF 275 kom til hafnar á Húsavík →

Vestmannaey VE 54 kom til Akureyrar undir kvöld

2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Togskipið Vestmannaey VE 54 kom til Akureyrar undir kvöld í dag en hverra erinda veit ég ekki. Ég fíraði ISO-inu upp í hæstu hæðir til að ná einhverju birtingarhæfu og hér er afraksturinn. 2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Með því að smella á myndirnar … Halda áfram að lesa Vestmannaey VE 54 kom til Akureyrar undir kvöld →

Víðir Trausti SU 517

1178. Víðir Trausti SU 517. Ljósmynd úr safni Auðar Stefánsdóttur. Víðir Trausti SU 517 var smíðaður hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar fyrir Trausta hf. á Eskifirði og kom hann til heimahafnar í fyrsta skipti þann 24. júlí 1971 Báturinn var 50 brl. að stærð, búinn 240 hestafla Caterpillar aðalvél. Víðir Trausti SU 517 var seldur norður á Hauganes … Halda áfram að lesa Víðir Trausti SU 517 →

Aðeins meira af Harðbak

2963. Harðbakur EA 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hér koma fleir myndir af Harðbak EA 3 sem ég tók í gær. Nóg er nú til. Harðbakur er þriðja skipið sem Útgerðarfélag Akureyrar eignast með þessu nafni, hið fyrsta kom 1950, síðutogari smíðaður í Skotlandi. Sá næsti var skuttogari smíðaður á Spáni 1974 og sá nýjasti … Halda áfram að lesa Aðeins meira af Harðbak →

Harðbakur EA 3 verður á dagatalinu 2020

2963. Harðbakur EA 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. "Verður Harðbakur ekki á dagatalinu ?" var ég spurður að á Akureyri í dag. Svarið var stutt og laggott og það var styttra en nei. Harðbakur EA 3 verður á dagatali Skipamynda.com árið 2020 og verðugur fulltrúi þessara sjö systurskipa sem bætast í flotann á þessu ári. … Halda áfram að lesa Harðbakur EA 3 verður á dagatalinu 2020 →

Í siglingu með Húna II EA 740

108. Húni II EA 740 kemur að bryggju eftir að hafa tekið á móti Harðbak hinum nýja. Ljósmynd Hafþór 2019. Í morgun bauðst mér að fara í siglingu með Húna II þegar báturinn sigldi til móts við nýja Harðbak EA 3. Steini Pje á brúarvængnum. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Það voru margir með myndavélina á … Halda áfram að lesa Í siglingu með Húna II EA 740 →

Harðbakur EA 3 kom til heimahafnar á Akureyri í morgun

2963. Harðbakur EA 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Harðbakur EA 3, nýtt togskip Útgerðarfélags Akureyringa, kom til heimahafnar á Akureyri laust fyrir klukkan 11 í morgun. Harðbakur er fimmta skipið í raðsmíðaverkefni sem Vard-skipasmíðastöðin afhendir íslenskum útgerðum á þessu ári. Hin eru Vörður ÞH 44, Áskell ÞH 48, Vestmannaey VE 54 og Bergey VE 144. … Halda áfram að lesa Harðbakur EA 3 kom til heimahafnar á Akureyri í morgun →

Jósef Geir ÁR 36 frá Stokkseyri

1266. Jósef Geir ÁR 36. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Jósef Geir ÁR 36, sem hér sést á mynd Tryggva Sigurðssonar, var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1972. Jósef Geir ÁR 36 var smíðaður fyrir Hraðfrystihús Stokkseyrar hf. sem gerði bátinn út alla tíð. Báturinn var 47 brl. að stærð með heimahöfn á Stokkseyri.  Jósef Geir … Halda áfram að lesa Jósef Geir ÁR 36 frá Stokkseyri →