2958. Áskell ÞH 48. Ljósmynd Jóns Steinar Sæmundsson 2020. Togskipið Áskell ÞH 48 kom með fullfermi að landi í Grindavík um hádegsibil í dag og tók Jón Steinar þessar myndir af honum. Aflinn fékkst við Surtinn en við skulum njóta myndanna. 2958. Áskell ÞH 48. Ljósmyndir Jóns Steinar Sæmundsson 2020. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Áskell kom með fullfermi að landi
Flokkur: Bátar
Trudovaya Slava
IMO 6505076. Trudovaya Slava. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Trudovaya Slava heitir þetta 12,487 brúttótonna skip sem pabbi myndaði þegar hann var á Dagfara ÞH 70 við síldveiðar norður í höfum. 1968 eða þar um bil. Þetta skip var byggt í Kiel í Vestur-Þýskalandi árið 1965 og var einhversskonar verksmiðjuskip. Þarna má sjá síldartunnur og því má … Halda áfram að lesa Trudovaya Slava
Brynjólfur ÁR 3
93. Brynjólfur ÁR 3 ex Nói EA 477. Ljósmynd Þorgeir Baldursson 1995. Þorgeir Baldursson tók þessa mynd um árið þegar Brynjólfur ÁR 3 var búinn í slipp á Akureyri en Meitillinn hf. í Þorláksshöfn keypti hann af Samherja haustið 1995. Upphaflega hét báturinn Helgi Flóventsson ÞH 77 og var smíðaður fyrir Svan h/f á Húsavík … Halda áfram að lesa Brynjólfur ÁR 3
Tindur ÍS 235
2017. Tindur ÍS 235 ex Helgi SH 135. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson 2020. Tindur ÍS 235 lét úr höfn í Njarðvík í kvöld og tók Guðmundur St. Valdimarsson þessa mynd við það tækifæri. Tindur ÍS 235 hét áður Helgi SH 135 en eins og kom fram á síðunni fyrir skömmu keypti Aurora Seafood ehf. bátinn … Halda áfram að lesa Tindur ÍS 235
Sveinn Guðmundsson GK 315
709. Sveinn Guðmundsson GK 315 ex Árni Ólafur GK 315. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér verið að landa úr Sveini Guðmundssyni GK 315 í Sandgerðishöfn en hans heimahöfn var Garðurinn. Sveinn Guðmundsson GK 315 var 21 tonna eikarbátur, smíðaður í Danmörku árið 1933 og gerður út frá Sandgerði en skráður í Garðinum eins og áður segir. … Halda áfram að lesa Sveinn Guðmundsson GK 315
Hafbjörg EA 23 á leið inn Skjálfandann
62. Hafbjörg EA 23 ex ex Jón Bjarnason SF 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hafbjörg EA 23 frá Hauganesi siglir hér inn Skjálfandann um árið en hún var gerð héðan út til úthafsrækjuveiða um tíma. Eigandi og útgerð Auðbjörg s/f á Hauganesi við Eyjafjörð. Hafbjörg EA 23 hefur áður komið við sögu á síðunni þar sem … Halda áfram að lesa Hafbjörg EA 23 á leið inn Skjálfandann
Skálavík ÁR 185
1126. Skálavík ÁR 185 ex Skálavík ÞH 178. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1982. Skálavík ÁR 185 , sem hér sést koma að bryggju í Þorlákshöfn á vetrarvertíðinni 1982, var gerð út af Ragnari Jónssyni á Eyrarbakka. Skálavík var smíðuð árið 1970 hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. fyrir Þjóðrek hf. Djúpavogi en 1973 var hún seld til Þórshafnar. … Halda áfram að lesa Skálavík ÁR 185
Pálína Þórunn GK 49 landaði í Grindavík
2449. Pálína Þórunn GK 49 ex Steinunn SF 10. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Togskipið Pálína Þórunn GK 49 kom til hafnar í Grindavík síðdegis í dag og landaði en kallarnir voru með nánast fullfermi.. Jón Steinar tók þessar myndir en aflinn var um 175 kör eftir sólarhring á veiðum. Aflinn fékkst vestur af Surtinum. … Halda áfram að lesa Pálína Þórunn GK 49 landaði í Grindavík
Kristbjörg ÞH 44 að dragnótaveiðum á Skjálfanda
1420. Kristbjörg ÞH 44. Ljósmynd Pétur Helgi Pétursson 1986. Þessar myndir af Kristbjörgu ÞH 44 tók Pétur Helgi Pétursson, þá skipverji á Geira Péturs ÞH 344, vorið 1986. Þennan dag var Geiri Péturs að koma úr Breiðafirðinum eftir afar gjöfula netavertíð en við á Kristbjörginni stunduðum dragnótaveiðar heima fyrir á meðan. Það fiskaðist það vel … Halda áfram að lesa Kristbjörg ÞH 44 að dragnótaveiðum á Skjálfanda
Sigurborg AK 375 á Breiðafirði
1019. Sigurborg AK 375 ex Freyja RE 38. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1984. Hér sjáum við Sigurborgina AK 375 frá Akranesi en myndin var tekin á Breiðafirði á vetrarvertíðinni 1984. Sigurborg AK 375 upphaflega Sveinn Sveinbjörnsson NK 55 frá Neskaupsstað, smíðaður í Hommelvik í Noregi 1966. Sveinn Sveinbjörnsson NK 55 var smíðaður fyrir Múla hf. í … Halda áfram að lesa Sigurborg AK 375 á Breiðafirði









