Hrafn Sveinbjarnarson GK 255

1028. Hrafn Sveinbjarnarsonn GK 255. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 var smíðaður árið 1967 fyrir Þorbjörn hf. í Grindavík. Einn 18 báta sem smíðaðir voru í skipasmíðastöðinni V.e.b Elbewerft í Boizenburg í Austur Þýskalandi.  Í 4 tbl. Faxa sem kom út 4. apríl 1967 sagði svo frá komu bátsins til landsins: Á skírdag kom … Halda áfram að lesa Hrafn Sveinbjarnarson GK 255

Freyja GK 364

923. Freyja GK 364 ex Kolbrún ÍS 74. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Séníverinn var eitt sinn gulur og hét Freyja GK 364 með heimahöfn í Garðinum. Eigandi Halldór Þórðarson sem gjarnan var nefndur Dóri á Freyjunni. Báturinn var smíðaður árið 1957 í Danmörku fyrir Sigvalda Þorleifsson h/f í Ólafsfirði og hét Þorleifur Rögnvaldsson ÓF 36. Báturinn … Halda áfram að lesa Freyja GK 364

Pétur Jacob SH 37

1227. Pétur Jacob SH 37 ex Þrái HF 127. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1986. Pétur Jacob SH 37, sem hér sést koma að landi í Ólafsvík, hét upphaflega Þytur NS 22 og var smíðaður árið 1972 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd. Báturinn sem var tæplega 12 brl.. að stærð var smíðaður fyrir Þyt h/f á … Halda áfram að lesa Pétur Jacob SH 37

Páll Jónsson lét úr höfn í dag

2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Konungur línuveiðaranna, eins og Jón Steinar kallar hann, Páll Jónsson GK 7 lét úr höfn í Grindavík um kaffileytið í dag. Hann kom úr stuttum prufutúr sl. fimmtudag og meðan að óveðrið gekk yfir var tíminn nýttur í að laga og betrumbæta ýmislegt smálegt sem menn … Halda áfram að lesa Páll Jónsson lét úr höfn í dag

Ísfirðingar á Húsavík

1148. Bára ÍS 66 - 1787. Stundvís ÍS 883. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það bar við á Húsavík sumarið 1993, ef ég man rétt, að bátar frá Ísafirði lönduðu úthafsrækju á Húsavík. Þá er ég að tala um báta af minni gerðinni sem hétu Bára ÍS 66, Stundvís ÍS 883 og Halldór Sigurðsson ÍS 14. Bára … Halda áfram að lesa Ísfirðingar á Húsavík

Kristey ÞH 25

1420. Kristey ÞH 25 ex Kristbjörg ÞH 25. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Kristey ÞH 25 kemur hér til hafnar á Húsavík um árið en hún hefur verið á dragnótaveiðum þegar myndirnar voru teknar. Báturinn var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1975 fyrir Korra h/f á Húsavík og hét Kristbjörg ÞH 44.  Báturinn var seldur Höfða h/f … Halda áfram að lesa Kristey ÞH 25

Kristín lét úr höfn í morgun

972. Kristín GK 457 ex Kristín ÞH 157. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Það var þungur sjór í honum þegar að línuskipið Kristín GK 457 lét úr höfn í Grindavík um kl. 11 í morgun. Jón Steinar tók meðfylgjandi myndir af þessu elsta línuskipið Vísis hf. sem upphaflega hét Þorsteinn RE 303 og var smíðað í … Halda áfram að lesa Kristín lét úr höfn í morgun

Glæsilegur floti

Glæsilegur floti nýrra skipa í Grindavíkurhöfn. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Á þessari mynd Jóns Steinars frá því í gær má sjá þrjú af nýjustu skipum flotans við bryggju í Grindavík. Fremstur er línuveiðarinn Páll Jónsson GK sem smíðaður var fyrir Vísi í Póllandi og aftan við hann systurskipin Vörður ÞH 44 og Áskell ÞH 48. … Halda áfram að lesa Glæsilegur floti