1207. Geiri Péturs ÞH 344 ex Sigurbergur GK 212. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1982. Geiri Péturs ÞH 344 á siglingu á Breiðafirði á vetrarvertíðinni 1982. Geiri Péturs var gerður út af Korra h/f á Húsavík en lagði upp hjá fiskverkunninni Hróa í Óafsvík á meðan verið var við veiðar á Breiðafirði. Geiri Péturs ÞH 344 var … Halda áfram að lesa Geiri Péturs ÞH 344
Flokkur: Bátar
Sigþór ÞH 100
185. Sigþór ÞH 100 ex Sigurpáll GK 375. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér er Sigþór ÞH 100 frá Húsavík á siglingu fyrir austan land með síldarfarm en við á Geira Péturs ÞH 344 mættum honum einn sólarmorguninn. Sigþór ÞH 100 hét upphaflega Sigurpáll GK 375 og var smíði no.46. frá Marstrands Mekaniska Verkstad A/B. í Marstrand … Halda áfram að lesa Sigþór ÞH 100
Kristbjörg II ÞH 244
1009. Kristbjörg II ÞH 244 ex Þuríður Halldórsdóttir GK 94. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1992. Hér koma myndir sem ég tók af Kristbjörgu II ÞH 244 koma til hafnar á Húsavík eftir línuróður. Báturinn hét upphaflega Sóley ÍS 225 frá Flateyri og kom ný til heimahafnar í lok maímánaðar 1966. Smíðuð í Risør í Noregi. Sóley … Halda áfram að lesa Kristbjörg II ÞH 244
Pálmi BA 30
1016. Pálmi BA 30 ex Sigurbjörg ÓF 30. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1983. Pálmi BA 30 er hér að draga netin á Breiðafirði á vetravertíðinni 1983. Þarna var maður vopnaður Kodak fermingarmyndavélinni og gæðin eftir því. Pálmi BA 30 hét upphaflega Sigurbjörg ÓF 1 og var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1966 fyrir Magnús Gamalíesson … Halda áfram að lesa Pálmi BA 30
Reykjaborg RE 25 kemur að landi í Reykjavík
2325. Reykjaborg RE 25. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Þessar myndir af Reykjaborginni koma til hafnar í Reykjavík þann 30. ágúst árið 2003 hafa ekki birts áður en nokkrar stafrænar sem teknar voru á sama tíma birtust í janúar 2019. Ekki var hún þó að koma úr róðri því allnokkur hópur manna var þarna um borð. … Halda áfram að lesa Reykjaborg RE 25 kemur að landi í Reykjavík
Dagfari ÞH 40
973. Dagfari ÞH 40. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hreiðar Olgeirsson tók þessar myndir sem nú birtast þegar hann var skipverji á Dagfara ÞH 40 frá Húsavík. Get ekki betur séð en það sé verið að dæla síld yfir í síldarflutningaskip á tveim þeirra en á hinni þriðju eru kallarnir með nótina á síðunni. Skipstjóri á Dagfara … Halda áfram að lesa Dagfari ÞH 40
Húsavíkurhöfn snemma á tíunda áratugnum
Húsavíkurhöfn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér koma nokkrar myndir sem ég vissi ekki að ég ætti til. Hef verið að skanna filmur og þessar dúkkuðu upp í svart-hvíta dótinu. Þetta eru myndir sem ég tel að teknar hafi verið vorið 1992 og greinilega bræla úti fyrir. Nokkuð um aðkomubáta að sjá. Súlan EA 300 og ÖrnKE … Halda áfram að lesa Húsavíkurhöfn snemma á tíunda áratugnum
Skálafell ÁR 50
100. Skálafell ÁR 50 ex Haförn SK 17. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Skálafell ÁR 50, sem hér sést koma til hafnar í Reykjavík, fór í brotjárn árið 2014 en það var smíðað árið 1959. Smíðin fór fram í Noregi en báturinn var smíðaður fyrir Fáskrúðsfirðinga og fékk hann nafnið Hoffell SU 80. Síðar hét hann … Halda áfram að lesa Skálafell ÁR 50
Kristrún RE 177 kemur að landi
256. Kristrún RE 177 ex Albert Ólafsson KE 39. Ljósmynd Valdimar Halldórsson. Hér kemur línubáturinn Kristrún RE 177 að landi í Reykjavík á fyrri hluta tíunda áratug síðustu aldar, ef ég man rétt en myndina tók Valdimar Halldórsson. Upphaflega hét báturinn Ólafur Friðbertsson ÍS 34 frá Súgandafirði, smíðaður Flekkefjord í Noregi 1964. Síðar Albert Ólafsson KE 39 … Halda áfram að lesa Kristrún RE 177 kemur að landi
Dala-Rafn VE 508 á útleið í dag
2758. Dala-Rafn VE 508. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Dala-Rafn VE 508, togbátur Ísfélagsins í Vestmannaeyjum, hélt til veiða í dag og náði Hólmgeir Austfjörð þessum myndum af honum þá. Dala Rafn VE 508 var smíðaður í Póllandi árið 2007 fyrir samnefnt útgerðarfélag. Þá var hann grænn en Ísfélag Vestmannaeyja keypti Dala-Rafn 2014 og með tímanum varð … Halda áfram að lesa Dala-Rafn VE 508 á útleið í dag









