Grímsnes GK 555

89. Grímsnes GK 555 ex Grímsnes BA 555. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Grímsnes GK 555 lá fyrir linsunni hjá Jóni Steinari í gær þegar báturinn kom til hafnar í Grindavík. Grímsnes GK 55 er gert út af Hólmgrími Sigvaldasyni. Upphaflega Heimir SU 100 frá Stöðvarfirði, smíðaður í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk As í Noregi … Halda áfram að lesa Grímsnes GK 555 →

Steinunn SF 10

1264. Steinunn SF 10 ex Klaus Hillesøy. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Steinunn SF 10 var keypt notuð frá frá Noregi og kom hún til heimahafnar á Hornafirði í októbermánuði árið 1972. Í Tímanum 18. október 1972 sagði svo frá komu bátsins: Nýr bátur, Steinunn SF 10, kom til Hornafj. í vikunni. Báturinn, er fjögurra ára gamall … Halda áfram að lesa Steinunn SF 10 →

Árni í Görðum VE 73

1179. Árni í Görðum VE 73. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Árni í Görðum VE 73 var smíðaður árið 1971 fyrir Einar Guðmundsson h/f hjá Þorgeir & Ellert h/f á Akranesi. Hann var 103 brl. að stærð búinn 500 hestafla Alpha aðalvél. Haustið 1983 er Árni í Görðum VE 73 seldur innanbæjar í Vestmannaeyjum og fær nafnið … Halda áfram að lesa Árni í Görðum VE 73 →

Drottningin kom að landi í dag

1076. Jóhanna Gísladóttir GK 557 ex Jóhanna Gísladóttir ÍS 7. Ljósmynd Jón Steinar 2021. Drottning línuveiðaranna, eins og sumir kalla Jóhönnu Gísladóttur GK 557, sést á þessum myndum Jóns Steinars koma inn til Grindavíkur fyrr í dag af austfjarðarmiðum. Aflinn hjá henni sem fékkst í 5 lögnum var 320 kör sem gerir um 100 tonn. … Halda áfram að lesa Drottningin kom að landi í dag →

Þorsteinn kemur að

Þorsteinn ÞH 115 ex Þorsteinn GK 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Það styttist í að vetrarvertíð hefjist en samkvæmt almanak.is hefst hún daginn eftir Kyndilmessu. Hér á myndinni sést Þorsteinn ÞH 115 frá Raufarhöfn koma að bryggju í Njarðvík á vertíðinni 2018. Um vetrarvertíð segir á almanak.is: vetrarvertíð (á Suðurlandi), veiðitími að vetri; telst frá fornu … Halda áfram að lesa Þorsteinn kemur að →