1199. Frár VE 78 ex Krossanes SU 5. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Frár VE 78 var smíðaður í Noregi árið 1969 en keyptur hingað til lands af Kirkjukletti hf. í Sandgerði árið 1971. Í Sandgerði fékk báturinn nafnið Jón Oddur GK 104 en í nóvember 1977 breyttist það í Jón Guðmundsson GK 104. Í ársbyrjun 1980 … Halda áfram að lesa Frár VE 78
Flokkur: Bátar
Björg Jónsdóttir ÞH 321
263. Björg Jónsdóttir ÞH 321 ex Gandí VE 171. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Björg Jónsdóttir ÞH 321 frá Húsavík er hér á síldarvertíð austanlands sennilega haustið 1986. Upphaflega hét báturinn Þorbjörn II GK 541 og var smíðaður árið 1964 fyrir Hraðfrystihús Þórkötlustaða h/f í Grindavík. Smíðin fór fram í Djupvík í Svíþjóð en báturinn var 168 … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321
Geir RE 406
450. Geir RE 406. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Geir RE 406 var smíðaður árið 1956 í Þýskalandi og var upphaflega KE 1 með heimahöfn í Keflavík. Eigendur Ólafur Loftsson og Þorsteinn Þórðarson. Um komu hans sagði svo frá í 4. tbl. Ægis 1956: Fyrsti þýzki stálbáturinn kom hingað til Keflavíkur 8. þ. m. og heitir hann … Halda áfram að lesa Geir RE 406
Að kveldi annars í jólum
Við Húsavíkurhöfn að kveldi annars í jólum. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Tók smá rúnt niður á bryggju og tók nokkrar myndir í leiðinni og hér birtist ein þeirra. Það var alveg logn og nýfallin föl svo það var auðvelt að láta freistast til myndatöku. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana … Halda áfram að lesa Að kveldi annars í jólum
Gleðileg jól – Merry Christmas – Feliz Navidad
Húsavík 23. desember 2020. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Með þessari mynd sem tekin var á Þorláksmessumorgun hér á Húsavík óska ég öllum þeim sem sækja síðuna heim gleðilegrar jólahátíðar með þökk fyrir innlitið á árinu sem er að líða. Merry Christmas to you all who visit this site with thanks for stopping by. Feliz Navidad a todos los que … Halda áfram að lesa Gleðileg jól – Merry Christmas – Feliz Navidad
Jón Sör ÞH 220
625. Jón Sör ÞH 220 ex Þórður Bergsveinsson SH 3. Ljósmynd Pétur Jónasson. Jón Sör ÞH 220 var gerður út frá Húsavík á árunum 1973 til 1977 og var í eigu Norðurborgar h/f á Húsavík. Jón Sör ÞH 220 var keyptur frá Stykkishólmi þar sem báturinn bar nafnið Þórður Bergsveinsson SH 3. Upphaflega hét báturinn … Halda áfram að lesa Jón Sör ÞH 220
Hörður Björnsson við bryggju
264. Hörður Björnsson ÞH 260 ex Gullhólmi SH 201. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Hér liggur línuskip GPG Seafood, Hörður Björnsson ÞH 260, við bryggju á Þorláksmessumorgni en hann var fagur morguninn hér við Skjálfanda. Um Hörð Björnsson má lesa hér. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By … Halda áfram að lesa Hörður Björnsson við bryggju
Skinney SF 30
250. Skinney SF 30 ex Ísleifur IV ÁR 463. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skinney SF 30 er hér á síldarmiðunum um árið, held að þetta sé á Hellisfirði haustið 1986. Þarna var Skinney SF 30, sem áður hét Ísleifur IV ÁR 463, nýkominn í flota Hornfirðinga en það var útgerðafélagið Skinney hf. sem keypti hana frá … Halda áfram að lesa Skinney SF 30
Geiri Péturs prýddur jólaljósum
1825. Geiri Péturs ÞH 344 ex Rosvik. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1987. Geiri Péturs ÞH 344 við bryggju á Húsavík prýddur jólaljósum en myndin var tekin jólin 1987 en hann kom nýr til Húsavíkur það sumar. Reyndar ekki alveg nýr því hann var smíðaður árið 1984 en Korri h/f keypti hann til landsins sumarið 1987. Um … Halda áfram að lesa Geiri Péturs prýddur jólaljósum
Sólborg við bryggju
1359. Sólborg SU 202. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hér liggur Sólborg SU 202 við bryggju á Fáskrúðsfirði milli hátíða prýdd jólastjörnu. Myndin var tekin af Hreiðari Olgeirssyni um 1990. Báturinn hét upphaflega Sturlaugur II ÁR 7 og var smíðaður hjá Skipasmíðastöð Marsellíusar Bernharðssonar h.f. á Ísfirði og afhentur í febrúar árið 1974. Hann var 138 brl. … Halda áfram að lesa Sólborg við bryggju









