Haukafell SF 111

108. Haukafell SF 111 ex Húni II HU 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Haukafell SF 111 hét upphaflega Húni II HU 2 með heimahöfn í Höfðakaupstað sem síðar fékk nafnið Skagaströnd. Báturinn var smíðaður 1963 eftir teikningu Tryggva Gunnarssonar skipasmíðameistara í skipasmíðastöð KEA á Akureyri.  Árið 1972 var báturinn seldur Eini h/f á Hornafirði og fékk … Halda áfram að lesa Haukafell SF 111

Sylvía

1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Sylvía kemur hér til hafnar í gærkveldi eftir hvalaskoðunarferð á Skjálfanda en það er Gentle Giants sem gerir Sylvíu út. Hún var smíðuð í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri árið 1976 og hét upphaflega Sigrún ÞH 169 með heimahöfn á Grenivík. Sigrún ÞH 169 var … Halda áfram að lesa Sylvía

Sólborg RE 27

3013. Sólborg RE 27 ex Tasermiut GR 6-395. Ljósmynd Vigfús Markússon. Frystitgogarinn Sólborg RE 27 sem Brim hf. gerir út er hér á toginu en myndina tók Vigfús Markússon. Sólborg hét áður Tasermiut GR 6-395 og var áður í eigu Arctic Prime Fis­heries á Græn­landi. Togarinn, sem hét upphaflega Tasermiut, var smíðaður hjá Langsten Slip … Halda áfram að lesa Sólborg RE 27

Náttfari við bryggju í Flatey

993. Náttfari ex Byrefjell. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2000. Norðursiglingarbáturinn Náttfari liggur hér við bryggju í Flatey á Skjálfanda í ágústmánuði árið 2000. Náttfari var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1965 og hét upphaflega Þróttur SH 4.  Þróttur, sem var fyrsti báturinn sem Skipavík smíðaði, hét ýmsum nöfnum í gegnum tíðina en Norðursigling keypti bátinn … Halda áfram að lesa Náttfari við bryggju í Flatey

Minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn

Minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn var afhjúpaður á Akureyri í gær. Ljósmynd Haukur Sigtryggur Valdimarsson. Minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn var afhjúpaður á Akureyri í gær og er hann staðsettur á Höepfnerssvæðinu. Haukur Sigtryggur Valdimarsson tók meðfylgjandi myndasyrpu við þetta tækifæri. Ljósmyndir Haukur Sigtryggur Valdimarsson 2026. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær … Halda áfram að lesa Minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn

Maliina Ittuk

IMO 9987988. Maliina Ittuk. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Hér gefur að líta grænlensku farþegaferjuna Maliina Ittuk við bryggju í Grindavík um helgina. Jón Steinar tók myndina og meðfylgjandi texta skrifaði hann á síðu sína Báta og bryggjurölt: "Þetta ku vera stærsta farþegaskip Grænlands í innanlands dagsferðum hjá þeim og einnig fyrsta nýsmíðin fyrir þá … Halda áfram að lesa Maliina Ittuk