
Línubáturinn Dúddi Gísla GK 48 skaust út frá Grindavík upp úr klukkan 6 í gærmorgun og lögðu strákarnir línuna í kjölfar brælunnar.
Þeir gáfu henni ekki langa legu. Það var bara keyrt beint í endann og byrjað að draga og komu þeir að landi aftur um 16:30 með um 4 tonn.
Jón Steinar tók meðfylgjandi myndir þegar báturinn kom að landi.





Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution