
Hér kemur handfærabáturinn Nonni ÞH 9 að landi sumarið 2002 en það var Trausti Jónsson sem gerði hann út.
Nonni hét upphaflega Jörundur EA 335 og skel bátsins smíðuð hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1985.
Á vefnum aba.is segir um bátinn:
Jörundur S. Torfason á Akureyri keypti skel bátsins og stýrishú frá Hafnafirði 1985 og setti bátinn saman á Akureyri.
Hjá Siglingastofnun er báturinn á Jörund skráður árið 1986.
Jörundur steypti stýrishúsið fast við bátsskrokkinn og innréttaði húsið og lúkar neðan þess.
Einnig annaðist Jörundur frágang vélar og alls vébúnaðar um borð í bátnum, smíðaði rekkverk, mastur og annan reiðabúnað.
Jörundur seldi bátinn til Fáskrúðsfjarðar árið 1990 og þar fékk hann nafnið Nonni SU 16.
Árið 2001 keypti Trausti Jónsson á Húsavík bátinn sem hélt nafninu en varð ÞH 9. Bátinn átti Trausti til ársins 2013 en þávar Nonni seldur til Neskaupstaðar þar sem hann varð NK 9.
Árið 2016 fékk hann nafnið Manni Dan, ári síðar hét hann Júdas og enn einu árið síðar fékk báturinn nafnið Ylfa Dís og allaf var hann NK 9.
Frá árinu 2021 hefur báturinn heitið Ylfa Dís NK en ekkert númer borið.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.