Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11

103. Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11 kemur hér að landi í Grindavík um árið en báturinn var smíðaður í Uksteinvik í Noregi árið 1963 hjá skipasmíðastöðinni M. Kleven Mek. Verksted AS.í Ulsteinvík. 

Þorbjörn h/f í Grindavík lét smíða skipið og átti það alla tíð uns það strandaði við Hópsnes við Grindavík og ónýttist 12.febrúar 1988. Mannbjörg varð.

Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11 var lengdur og yfirbyggður 1982. Eftir það mældist hann 175 brl. að stærð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd