
Samherji hefur fest kaup á uppsjávarskipinu Bjarna Ólafssyni AK 70 frá Síldarvinnslunni og kemur það í stað Margrétar EA 710 sem seld var til Færeyja fyrir skömmu.
Skipið var smíðað árið 1999 í Noregi og var keypt til Íslands árið 2015.
Bjarni Ólafsson er um 2000 tonn að þyngd og er burðargeta skipsins tæp 2000 tonn. Skipið er 67 metrar að lengd og 13 metra breitt.
Í fréttatilkynningu frá Samherja segir að skipið sé búið til veiða með nót og flottrolli, sem hefur í för með sér aukna möguleika og sveigjanleika í uppsjávarveiðum Samherja.
Skipið var afhent í Neskaupstað á dögunum og heldur þaðan beint á síldveiðar. Skipstjóri í fyrstu veiðiferð Bjarna Ólafssonar á vegum Samherja er Hjörtur Valsson.
Gert er ráð fyrir að skipið komi til heimahafnar á Akureyri á næstu vikum. Þá verður skipinu gefið nýtt nafn, það fer í hefðbundið viðhald og undirbúið fyrir komandi loðnuvertíð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution