2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hafborgin siglir hér til hafnar á Húsavík í gær en sólarlagið á Skjálfanda var ægifagurt. Ekkert meira um þessa mynd að segja. Nema þá helst að Skjálfandi skartar einnig sínu fegursta í kvöld. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. … Halda áfram að lesa Hafborgin
Author: Hafþór Hreiðarsson
Glófaxi VE 300
968. Glófaxi VE 300 ex Arnþór EA 16. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Flott þessi mynd Tryggva Sigurðssonar af Glófaxa VE 300 koma drekkhlaðinn til hafnar í Vestmannaeyjum. Upphaflega Krossanes SU 320 og var einn 18 báta sem smíðaðir voru í Boizenburg fyrir Íslendinga á árunum 1964-1968. Nöfnin sem báturinn bar á ferli sínum eru: Krossanes SU … Halda áfram að lesa Glófaxi VE 300
Fossá ÞH 362
2404. Fossá ÞH 362. Ljósmynd Börkur Kjartansson. Á þessum myndum Barkar Kjartanssonar má sjá kúfiskveiðiskipið Fossá ÞH 362 frá Þórshöfn við veiðar á Skjálfanda. Fossá ÞH 362 var smíðuð í fyrir Hraðfrystistöðvar Þórshafnar og kom hún til heimahafnar á Þórshöfn í febrúarmánuði árið 2001. Skipið var smíðað í Huangpu-skipasmíðastöðinni í Gung Zhou í Kína. Í … Halda áfram að lesa Fossá ÞH 362
Björgvin SH 500
7690. Björgvin SH 500 ex Silla BA 67. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Björgvin SH 500 var í höfn á Húsavík í dag en hann kom landleiðina í gær og var sjósettur við Norðurgarðinn. Veit svo sem ekkert enn á hvaða ferðalagi hann er en það kemur í ljós á næstunni. Báturinn hét upphaflega Silla BA … Halda áfram að lesa Björgvin SH 500
Herborg HF 67
6429. Herborg HF 67 ex Eva HF 67. Ljósmynd Kristvin Már Þórsson 2021. Kristvin Már Þórsson tók þessa mynd af strandveiðibátnum Herborgu HF 67 á dögunum en skipstjórinn þar um borð er Húsvíkingurinn Hermundur Svansson. Nú búsettur í Hafnarfirði. Herborg hét upphaflega Árni Gunnlaugsson ÓF 15 og var smíðaður árið 1982 og hafði smíðanúmer 69 … Halda áfram að lesa Herborg HF 67
Hafrafell farið austur
2912. Hafrafell SU 65 ex Hulda GK 17. Ljósmynd Jón Steinar 2021. Þeim fækkar aðkomubátunum sem róið hafa frá suðvesturhorninu að undanförnu og mokfiskað. Hrygningarfiskurinn er nú genginn af slóðinni og fiskiríið dottið niður enda ekki að ástæðulausu að lokadagur vetrarvertíðar var hér áður fyrr 11. maí. Hafrafell SU 65 lét úr höfn í Grindavík í … Halda áfram að lesa Hafrafell farið austur
Sighvatur hélt til veiða í kvöld
1416. Sighvatur GK 57 ex Sævík GK 257. Ljósmynd Jón Steinar 2021. Línuskipið Sighvatur GK 57 til veiða frá Grindavík í sólinni fyrr í kvöld. Hann kom inn til löndunar í morgun og landaði rétt rúmum 200 körum, það gerir um 65 tonn. Uppistaða aflans var langa. 1416. Sighvatur GK 57 ex Sævík GK 257. Ljósmyndir … Halda áfram að lesa Sighvatur hélt til veiða í kvöld
Skúmur RE 90
1151. Skúmur RE 90. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skúmur RE 90 var smíðaður fyrir Kristján Einarsson árið 1971 í Bátasmiðju Jóhanns L. Gíslasonar í Hafnarfirði. Báturinn hét Skúmur alla tíð og með heimahöfn í Reykjavík. Hann var tekinn af skipaskrá í ársbyrjun 2010 en hafði síðast haffæri árið 2001. Heimild aba.is Skúmur var 10 brl. að … Halda áfram að lesa Skúmur RE 90
Geisli
7385. Geisli KÓ ex Eyjasómi HF 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsso 2021. Geisli, bátur Vegagerðarinnar, var við mælingar í Húsavíkurhöfn í gær og var þessi mynd tekin þá. Geisli var smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1994 og er Sómi 660. Fyrsta kastið hét hann Eyjasómi HF 100 og var í eigu bátasmiðjunnar. Síðan hefur … Halda áfram að lesa Geisli
Jökull myndaður úr lofti
2991. Jökull ÞH 299 ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hér koma drónamyndir sem teknar voru í vikunnni þegar Jökull ÞH 299 kom að landi á Húsavík. Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd hans er 44 metrar og breiddin 10 metrar. Annars má lesa meira um … Halda áfram að lesa Jökull myndaður úr lofti









