
Norska loðnuskipið Nordfisk N-1-B er hér á Fáskrúðsfirði en myndina tók Þorgeir Baldursson í gær.
Skipið er smíðað árið 2002 og hét upphaflega Sørfold. Það er með heimahöfn í Bodø og hefur heitið Nordfisk frá árinu 2004.
Nordfisk er 64 metrar að lengd, 14 metra breitt og mælist 1,518 GT að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution