Berglín heldur til veiða

1905. Berglín GK 300 ex Jöfur ÍS 172. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Rækjutogarinn Berglín GK 300 landaði á Siglufirði í dag og voru þessar myndir teknar þegar hún lét aftur úr höfn undir kvöld. Berglín GK 300, sem er í eigu Nesfisks hf. í Garði, var smíðuð í skipasmíðastöðinni Stálvík í Garðabæ og hét upphaflega … Halda áfram að lesa Berglín heldur til veiða

Wilson Nantes við Bökugarðinn

Wilson Nantes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Wilson Nantes liggur nú við Bökugarðinn en verið er að skipa upp hráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka. Skipið hefur komið til Húsavíkur áður og það í sömu erindagjörðum. Skipið var smíðað árið 2011 og siglir undir fána Möltu með heimahöfn í Walletta. Það er 123 metra langt og … Halda áfram að lesa Wilson Nantes við Bökugarðinn

Halldór NS 302 kom til Húsavíkur í morgun

2672. Halldór NS 302 ex Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Halldór NS 302 frá Bakkafirði kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum hvar hann var hífður hið snarasta á land til skverunar.  Hann er í eigu Halldórs fiskvinnslu ehf. á Bakkafirði sem er í eigu GPG Seafood á Húsavík. … Halda áfram að lesa Halldór NS 302 kom til Húsavíkur í morgun

Harðbakur á útleið frá Grindavík

2963. Harðbakur EA 3. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Jón Steinar tók þessar myndir af Harðbak EA 3 þar sem hann var á útleið frá Grindavík síðdegis í dag. Harðbakur hafði komið til hafnar í morgun vegna bilerís og landaði 26 tonnum en togarinn hafði nýhafið veiðiferð þegar bilunin kom upp. 2963. Harðbakur EA 3. … Halda áfram að lesa Harðbakur á útleið frá Grindavík

Suðurey VE 500

1258. Suðurey VE 500 ex Gunnar Jónsson VE 500. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Suðurey VE 500 hét upphaflega Gunnar Jónsson VE 500 og var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1972. Báturinn, sem var 147 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Jón Valgarð Guðjónsson, Vestmannaeyjum og Ísfell hf. Reykjavík.  Árið 1974 var Gunnar Jónsson VE 500 … Halda áfram að lesa Suðurey VE 500

Andvari ÞH 81

278. Andvari ÞH 81 ex TH 81. Ljósmynd Pétur Jónasson. Andvari ÞH 81 vel hlaðinn í Húsavíkurhöfn um árið, Ómar Vagns fram á og Siggi í Hlíð upp á lúkarskappanum. Held ég. Báturinn var smíðaður á Akureyri 1942 og hét upphaflega Baldvin Þorvaldsson EA 721 frá Dalvík. Hann var smíðaður í Skipasmíðastöð KEA fyrir Baldvin, … Halda áfram að lesa Andvari ÞH 81

Bugoe kom til Húsavíkur í morgun

IMO 9376775. Bugoe á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Bugoe kom til Húsavíkur í morgun með trjádrumba fyrir kísilver PCC á Bakka. Bugoe, sem var smíðað árið 2008, er 107 metra langt, 15 metra breitt og mælist 4,102 GT að stærð. Skipið siglir undir fána Portúgals og er með heimahöfn á Madeira. IMO 9376775. … Halda áfram að lesa Bugoe kom til Húsavíkur í morgun

Kristbjörg ÞH 44

541. Kristbjörg ÞH 44 ex Hallsteinn EA 130. Ljósmynd Pétur Jónasson. Það er vel í Kristbjörginni þarna og heyskapur í fullum gangi í brekkunni en Olgeir Sigurgeirsson í Skálabrekku gerði bátinn út ásamt sonum sínum Siguði og Hreiðari. Báturinn var smíðaður í Danmörku 1934 og hét upphaflega Ægir GK 8, 22 brl. að stærð, og … Halda áfram að lesa Kristbjörg ÞH 44