363. Maron GK 522 ex Maron HU 522. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Netabáturinn Maron GK 522 kom til hafnar í Grindavík á dögunum og tók Jón Steinar þessar myndir við það tækifæri. Maron er elsti stálbátur landsins sem enn er í fullri drift og hét upphaflega Búðafell SU 90, smíðaður árið 1955 í Scheepswerf … Halda áfram að lesa Maron GK 522 kemur til Grindavíkur
Author: Hafþór Hreiðarsson
Ný Cleopatra 35 makrílveiðibátur til Bergen
Tomina VL-12-ØN. Ljósmynd Trefjar 2021. Jimmy Bjorøy útgerðarmaður í Bergen fékk á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 35 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Jimmy verður sjálfur skipstjóri á bátnum sem heitir Tomina VL-12-ØN og er 10.65 metrar á lengd og mælist 11 brúttótonn að stærð. Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 520hö tengd … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 35 makrílveiðibátur til Bergen
Margrét GK 33 á Siglufirði
2952. Margrét GK 33. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Margrét GK 33 kemur hér til hafnar á Siglufirði í vikunni eftir línuróður en það er Nesfiskur ehf. sem gerir bátinn út. Báturinn var smíðaður hjá Víkingbátum árið 2019 en hann er tæplega 22 BT að stærð, lengd hans er 11,99 metrar. Heimahöfn Suðurnesjabær. 2952. Margrét GK … Halda áfram að lesa Margrét GK 33 á Siglufirði
Þorsteinn GK 16
1159. Þorsteinn GK 16 ex Svanur SH 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1997. Þessi mynd var tekin í Grindavík í aprílmánuði árið 1997 og sýnir Þorstein GK 16 við bryggju. Eins og sjá má er báturinn með íslenska fánann í afturmastrinu en hann var þarna nýkominn til nýrrar heimahafnar í Grindavík. Í Morgunblaðinu 16. apríl sagði … Halda áfram að lesa Þorsteinn GK 16
Þorgrímur SK 27
2104.Þorgrímur SK 27 ex Mummi GK 121. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þorgrímur SK 27 frá Hofsósi kemur hér að landi á Siglufirði í vikunni en hann er á handfæraveiðum. Eigandi Jónas Þór Einarsson. Þorgrímur hét upphaflega Jón Björn HF 77 og er 6 brl. að stærð. Báturinn var smíðaður af Fossplasti hf. árið 1990 en … Halda áfram að lesa Þorgrímur SK 27
Landað úr Huldu á Siglufirði
Landað úr Huldu á Siglufirði. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessi mynd var tekin á Siglufirði í fyrradag þegar löndun stóð yfir hjá köllunum á línubátnum Huldu GK 17. Búið var að landa úr Óla á Stað GK 99 og Geirfugli GK 66 sem sjást þarna lengra en verið var að landa úr Oddi á Nesi … Halda áfram að lesa Landað úr Huldu á Siglufirði
Landað úr Laxinum
5920. Laxinn ÞH 177 ex GK 177. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Á þessari mynd sem tekin var við Húsavíkurhöfn síðdegis í dag er verið að landa úr Laxinum ÞH 177 sem Reynir Hilmarsson stýrir. Búið að landa úr Óskinni og Sigurður að þrífa en Smyrill bíður þess að komast undir kranann. Ef grannt er skoðað … Halda áfram að lesa Landað úr Laxinum
Særún EA 251
2711. Særún EA 251 ex Elli P SU 206. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Særún EA 251 kemur hér til hafnar á Árskógssandi í gærmorgun en hún er á handfæraveiðum. Báturinn, sem er af gerðinni Siglufjarðar-Seigur, var smíðaður á Siglufirði árið 2007 og hét upphaflega Lúkas ÍS 71 og var í eigu Álfsfells ehf. á Ísafirði. … Halda áfram að lesa Særún EA 251
Rósborg SI 29
6579. Rósborg SI 29 ex Rósborg ÍS 29. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Strandveiðibáturinn Rósborg SI 29 kemur hér úr róðri í gær Ólafur Baldur Gunnarsson gerir hann út frá Siglufirði. Rósborg hét upphaflega Silvía HF 152 og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1984. Árið 1998 var hann keyptur til Suðureyrar við Súgandafjörð þar … Halda áfram að lesa Rósborg SI 29
Oddur á Nesi kemur að landi
2585. Oddur á Nesi ÓF 176 ex Hafrún ÍS 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Oddur á Nesi ÓF 176 kemur hér að landi á Siglufirði í dag en hann rær með línu. Oddur á Nesi hét upphaflega Venni GK 167 og átti heimahöfn í Grindavík. Síðar Ragnar SF 550, því næst Guðmundur Sig. SF 650. … Halda áfram að lesa Oddur á Nesi kemur að landi









