Finndu fimm breytingar 3

2212. Snæfell EA 310. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Best að henda í einn leik sem snýst um það að greina fimm atriði sem hefur verið breytt á milli mynda. Koma má með lausnirnar í athugasemdarkerfinu hér að neðan. Eða á Fésbókarsíðu Skipamynda.com Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri … Halda áfram að lesa Finndu fimm breytingar 3 →

Dagfari farinn að sigla

1470. Dagfari ex Salka. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd var tekin nú eftir hádegið þegar Dagfari kom úr hvalaskoðunarferð á Skjálfanda. Eins og kom fram á síðunni fyrir nokkru fékk báturinn þetta nafn í vetur en hann hét áður Salka. Ferðin í dag var fyrsta ferð bátsins undir þessu nafni. Báturinn hét upphaflega Hafsúlan RE … Halda áfram að lesa Dagfari farinn að sigla →

Álaborg ÁR 25

133. Álaborg ÁR 25 ex Álaborg GK 175. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Álaborg ÁR 25 kemur hér að landi í Þorlákshöfn um árið en hennar heimahöfn var Eyrarbakki. Það var Fiskiver hf. sem gerði bátinn þaðan út í ríflega aldarfjórðung en upphaflega hét hann Kambaröst SU 200. Hann var smíðaður í Austur-Þýskalandi árið 1961 fyrir Hraðfrystihús … Halda áfram að lesa Álaborg ÁR 25 →

Haförn HU 4 í slipp á Siglufirði

1470. Haförn HU 4 ex Dagbjört SU 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1988. Hafsúlan HU 4 frá Hvammstanga er hér í slipp á Siglufirði um árið. Held að myndin sé tekin 1988 en má vera að það hafi verið ári síðar. Báturinn hét upphaflega Hafsúlan RE 77 og var smíðuð í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. í Hafnarfirði … Halda áfram að lesa Haförn HU 4 í slipp á Siglufirði →

Viðar og Öxarnúpur

1353. Viðar ÞH 17 - 1538. Öxarnúpur ÞH 162. Ljósmynd Hafþór Hreiðarson. Hér liggja þeir við bryggju á Raufarhöfn Viðar ÞH 17 og Öxarnúpur ÞH 162 það var þeirra heimahöfn. Viðar var í eigu Hólmsteins Helgasonar h.f., Raufarhöfn og um bátinn má lesa hér. Jökull hf. keypti Öxarnúp til Raufarhafnar árið 1992 en um bátinn … Halda áfram að lesa Viðar og Öxarnúpur →

Myndasyrpa af Dúdda Gísla á landleið í dag

2999. Dúddi Gísla GK 48 ex Hulda GK 17. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Línubáturinn Dúddi Gísla GK 48 frá Grindavík kom úr róðri í dag og tók Jón Steinar þessa myndasyrpu af bátnum á landleið. Samkvæmt ljósmyndara var hann var hálf tregur hjá honum í dag, afli dagsins um 5 tonn. Dúddi Gísla GK 48 … Halda áfram að lesa Myndasyrpa af Dúdda Gísla á landleið í dag →

Myndasyrpa af Jóhönnu Gísladóttur koma að landi í dag

2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Jón Steinar tók þessa flottu myndasyrpu í dag þegar Jóhanna Gísladóttir GK 357 kom til hafnar í Grindavík. Hún var nánast með fullfermi eða 211 kör sem gerir um 70 tonn, uppistaða aflans er þorskur, ýsa og ufsi. Nú tekur við páskafrí … Halda áfram að lesa Myndasyrpa af Jóhönnu Gísladóttur koma að landi í dag →