
Siggi Valli föðurbróðir minn hefði orðið áttræður í dag en hann lést haustið 2005.
Það er því tilvalið að birta myndir af einu skipanna sem hann gerði út undir nafninu Geiri Péturs ÞH 344.
Þær koma úr myndasafni Olgeirs sonar hans sem tók við sem skipstjóri á Geira Péturs þegar Siggi Valli fór í land.
Um Geira Péturs, sem upphaflega hét Skúmur GK 22, má lesa hér.



Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.
Ég átti mikil samskipti við þá feðga hér í den á rækjuni það fór alltaf vel á með okkur á Guðrúnu Þorkelss og Geira Pé,enda miklir heiðursmenn.blessuð sé minning Sigga.
Líkar viðLíkar við
Þakka góð orð Orri.
Líkar viðLíkar við