Njáll ÓF 275 kom til hafnar á Húsavík

Njáll ÓF 275 ex Njáll RE 275. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Dragnótabáturinn Njáll ÓF 275 kom til hafnar á Húsavík síðdegis í dag en hann hafði verið að veiðum á Skjálfanda. Njáll ÓF 275 var smíðaður í Bátalóni hf.í Hafnarfirði árið 1980 og var með smíðanúmer 460 frá stöðinni. Smíðaður fyrir Sjóla hf. í Reykjavík … Halda áfram að lesa Njáll ÓF 275 kom til hafnar á Húsavík

Vestmannaey VE 54 kom til Akureyrar undir kvöld

2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Togskipið Vestmannaey VE 54 kom til Akureyrar undir kvöld í dag en hverra erinda veit ég ekki. Ég fíraði ISO-inu upp í hæstu hæðir til að ná einhverju birtingarhæfu og hér er afraksturinn. 2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Með því að smella á myndirnar … Halda áfram að lesa Vestmannaey VE 54 kom til Akureyrar undir kvöld

Víðir Trausti SU 517

1178. Víðir Trausti SU 517. Ljósmynd úr safni Auðar Stefánsdóttur. Víðir Trausti SU 517 var smíðaður hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar fyrir Trausta hf. á Eskifirði og kom hann til heimahafnar í fyrsta skipti þann 24. júlí 1971 Báturinn var 50 brl. að stærð, búinn 240 hestafla Caterpillar aðalvél. Víðir Trausti SU 517 var seldur norður á Hauganes … Halda áfram að lesa Víðir Trausti SU 517

Aðeins meira af Harðbak

2963. Harðbakur EA 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hér koma fleir myndir af Harðbak EA 3 sem ég tók í gær. Nóg er nú til. Harðbakur er þriðja skipið sem Útgerðarfélag Akureyrar eignast með þessu nafni, hið fyrsta kom 1950, síðutogari smíðaður í Skotlandi. Sá næsti var skuttogari smíðaður á Spáni 1974 og sá nýjasti … Halda áfram að lesa Aðeins meira af Harðbak

Harðbakur EA 3 verður á dagatalinu 2020

2963. Harðbakur EA 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. "Verður Harðbakur ekki á dagatalinu ?" var ég spurður að á Akureyri í dag. Svarið var stutt og laggott og það var styttra en nei. Harðbakur EA 3 verður á dagatali Skipamynda.com árið 2020 og verðugur fulltrúi þessara sjö systurskipa sem bætast í flotann á þessu ári. … Halda áfram að lesa Harðbakur EA 3 verður á dagatalinu 2020

Í siglingu með Húna II EA 740

108. Húni II EA 740 kemur að bryggju eftir að hafa tekið á móti Harðbak hinum nýja. Ljósmynd Hafþór 2019. Í morgun bauðst mér að fara í siglingu með Húna II þegar báturinn sigldi til móts við nýja Harðbak EA 3. Steini Pje á brúarvængnum. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Það voru margir með myndavélina á … Halda áfram að lesa Í siglingu með Húna II EA 740

Harðbakur EA 3 kom til heimahafnar á Akureyri í morgun

2963. Harðbakur EA 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Harðbakur EA 3, nýtt togskip Útgerðarfélags Akureyringa, kom til heimahafnar á Akureyri laust fyrir klukkan 11 í morgun. Harðbakur er fimmta skipið í raðsmíðaverkefni sem Vard-skipasmíðastöðin afhendir íslenskum útgerðum á þessu ári. Hin eru Vörður ÞH 44, Áskell ÞH 48, Vestmannaey VE 54 og Bergey VE 144. … Halda áfram að lesa Harðbakur EA 3 kom til heimahafnar á Akureyri í morgun