Kristrún RE 177

256. Kristrún RE 177 ex Albert Ólafsson KE 39. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Línubáturinn Kristrún RE 177 kemur hér til hafnar í Reykjavík um árið. Upphaflega hét báturinn Ólafur Friðbertsson ÍS 34 frá Súgandafirði, smíðaður Flekkefjord í Noregi 1964. Síðar Albert Ólafsson KE 39 og um tíma HF 39. Aftur KE 39 og síðan þetta nafn sem hann … Halda áfram að lesa Kristrún RE 177

Víkurröst VE 70

2342. Víkurröst Ve 70 ex Víkurröst VE 2. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Víkurröst VE 70 sést hér koma til hafnar í Vestmannaeyjum í gær eftir handfæraróður. Víkurröst var var smíðuð hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1999 fyrir Þorstein Gunnarsson og var fyrst með heimahöfn í Vík í Mýrdal. Hún var með einkennisstafina VS og númerið … Halda áfram að lesa Víkurröst VE 70

Ný Cleopatra 33 til Mæri

Bajas M-1-RA. Ljósmynd Trefjar.is 2019. Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til Vågstranda sem er sveitarfélag í Mæri og Raumsdal í Noregi. Kaupandi bátsins eru feðgarnir Johan og Tobias Solgård og er Tobias skipstjóri á bátnum sem hefur hafið veiðar. Báturinn, sem hefur hlotið nafnið Bajas, er af gerðinni Cleopatra 33 … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 33 til Mæri

Örfirisey RE 4

2170.Örfirisey RE 4 ex Polarborg 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Þessar myndir af frystitogara HB, Granda, Örfirisey RE 4, voru teknar í marsmánuði árið 2018. Örfirisey var smíðuð árið 1988 í Kristiansund í Noregi fyrir Færeyinga og hét Polarborg 1. Grandi keypti skipið 1992 og þá fékk það nafnið Örfirisey RE 4. Það var lengt … Halda áfram að lesa Örfirisey RE 4

Reykjaborg RE 25

2325. Reykjaborg RE 25. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Þessar myndir voru teknar 30. ágúst 2003 af Reykjaborg RE 25 koma til hafnar í Reykjavík. Ekki var hún þó að koma úr róðri því allnokkur hópur manna var þarna um borð. Og báturinn nýmálaður og fínn og Bugtin handan við hornið. 2325. Reykjaborg RE 25. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson … Halda áfram að lesa Reykjaborg RE 25

Síldin háfuð um borð í Dagfara ÞH 70

Um borð í 1037. Dagfara ÞH 70. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1967. Þessar tvær myndir tók Hreiðar Olgeirsson um borð í Dagfara ÞH sumarið 1967. Þarna er verið að háfa síld í bátinn sem var glænýr þegar þettta var. Kom í fyrsta skipti til heimahafnar 17. maí það ár. Dagfari ÞH 70 var smíðaður fyrir Barðann … Halda áfram að lesa Síldin háfuð um borð í Dagfara ÞH 70