
Frystitgogarinn Sólborg RE 27 sem Brim hf. gerir út er hér á toginu en myndina tók Vigfús Markússon.
Sólborg hét áður Tasermiut GR 6-395 og var áður í eigu Arctic Prime Fisheries á Grænlandi.
Togarinn, sem hét upphaflega Tasermiut, var smíðaður hjá Langsten Slip & Båtbyggeri A/S í Tomrefjord í Noregi árið 1988. Hann er 76 metra langur, 13,2 metrar á breidd og mælist 2,707 BT að stærð.
Árið 2009 fékk togarinn nafnið Labrador Storm og var skráður á Nýfundnalandi en var aftur skráður á Grænlandi árið 2014 og fékk sitt fyrra nafn.
Það var svo árið 2021 sem togarinn var keyptur til Íslands þar sem hann fékk nafnið Sólborg RE 27.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution