Oddur V Gíslason

2743. Oddur V. Gíslason. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026.

Hér koma myndir sem Jón Steinar tók í gær þegar björgunarskipið Oddur V. Gíslason kom til hafnar í Grindavík eftir gifturíkan leiðangur á haf út.

Um þennan leiðangur Odds segir m.a á fésbókarsíðu Björgunarsveitarinnar Þorbjörns í Grindavík:

Rétt fyrir klukkan 11 í morgun tókst áhöfninni á björgunarskipinu Oddi V. Gíslasyni að finna og bjarga ómönnuðum Breskum rannsóknarbát/dróna um 75 sjómílur suðaustur af Grindavík.

Fyrir nokkrum dögum síðan hafði Breskt tæknifyrirtæki samband við sveitina til þess að kanna möguleikan á því að sækja þetta tæki fyrir þá en það hafði orðið fyrir tjóni og gat ekki haldið leið sinni áfram. Eftir að hafa skoðað sjólag og veðurspá yfir helgina var ákveðið að leggja í hann klukkan 4 í morgun í blíðskaparveðri og var áætlað ferðin tæki allt að 16 klukkustundir í heildina. Fyrir utan frábæra æfingu í leit og björgun á sjó þá er þetta góð fjáröflun fyrir sveitina og björgunarskipið Odd V. Gíslason sem fagnar 41 árs afmæli á þessu ári.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd