Helgi SF 50 á Siglufirði

TFDV. Helgi SF 50. Ljósmynd Hannes Baldvinsson Siglufirði. Vélbáturinn Helgi SF 50 var smíðaður fyrir Hornfirðinga í Danmörku 1956 og var 56 brl. að stærð. Á þessari mynd Hannesar Baldvinssonar er hann að koma með síld til löndunar á Siglufirði. 15. september 1961 fórst Helgi SF 50 á Færeyjabanka og fórust þar sjö menn, en … Halda áfram að lesa Helgi SF 50 á Siglufirði →

Öðlingur SU 19

2959. Öðlingur SU 19 ex Tranøy T-115-T. Ljósmynd Þór Jónsson. Öðlingur SU 19 er er af gerðinni Cleopatra 36B og hét upphaflega Tranøy T-115-T frá Tromsø. Smíðaður fyrir útgerðarfélagið West Atlantic AS og afhentur í janúar árið 2016. Eyfreyjunes ehf. á Djúpavogi keypti Tranøy til landsins haustið 2017 og leysti hann af hólmi minni bát … Halda áfram að lesa Öðlingur SU 19 →

Sti Poplar í Helguvík

Olíuskipið Sti Poplar í Helguvík. Ljósmyn Elvar Jósefsson 2019. Hér birtast myndir sem Elvar Jósefsson sendi síðunni af olíuskipinu Sti Poplar sem kom til Helguvíkur fyrir skömmu með flugvélaeldsneyti. Skipið losaði um 40 milljónir lítra í olíubirgðarstöðina í Helguvík, það kom aðfaranótt föstdagsins 22. mars og fór að morgni laugardags 23. mars. STI Poplar. Ljósmynd … Halda áfram að lesa Sti Poplar í Helguvík →

Hitti fyrir gamlan kunningja norðarlega í Smugunni

ESKS. Steffano EK 16-01 ex Steffen C GR 6-22. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2019. Alltaf gaman að fá gamla "kunningja" í heimsókn segir Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á rækjutogaranum Reval Viking við mynd sína í Fésbókarfærslu hans í dag. Myndin er af rækjutogaranum Steffano sem er í eigu sama fyrirtækis og Reval Viking, Reyktal AS en þeir … Halda áfram að lesa Hitti fyrir gamlan kunningja norðarlega í Smugunni →

Ísey ÁR 11 kemur til hafnar í dag

1458. Ísey ÁR 11 ex Kristbjörg ÁR 11. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Dragnótabáturinn Ísey ÁR 11 kom til hafnar í Grindavík undir kvöld og Jón Steinar tók á móti henni með myndavélina á lofti. Ísey ÁR 11 er í eigu Saltabergs ehf. sem nýverið endurnefndi bátinn sem áður hét Kristbjörg ÁR 11. Báturinn hét upphaflega … Halda áfram að lesa Ísey ÁR 11 kemur til hafnar í dag →

Þengill ÞH 114

1099. Þengill ÞH 114 ex Kópur ÞH 114. Ljósmynd Sigurgeir Smári Harðarson. Hér eru bræðurnir Guðjón og Kristján Björnssynir að draga línuna á Þengli ÞH 114 sem þeir áttu og gerðu út ásamt Herði Arnórssyni. Þengill ÞH 114 var smíðaður á Akureyri árið 1970 fyrir Gest Halldórsson á Húsavík sem nefndi bátinn Kóp ÞH 114. … Halda áfram að lesa Þengill ÞH 114 →