Sóley Sigurjóns GK 200

2262. Sóley Sigurjóns GK 22 ex Sólbakur RE 207. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019 Á þessari mynd Hólmgeirs Austfjörð frá því í gær má sjá togarann Sóley Sigurjóns GK 200 að veiðum fyrir vestan land. Nesfiskur hf. í Garði gerir togarann út en hann hét áður Sólbakur RE 207. Upphaflega hét togarinn Quaasiut en fékk nafnið … Halda áfram að lesa Sóley Sigurjóns GK 200

Sigurborg SH 12

1019. Sigurborg SH 12 ex Sigurborg HU 100. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir í gærmorgun af Sigurborgu SH 12 þar sem hún var að veiðum suðvestur úr Bjargtöngum. 1019. Sigurborg SH 12 ex Sigurborg HU 100. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Sigurborg SH 12 er í eigu Soffaníasar Cecilssonar ehf. í Grundarfirði … Halda áfram að lesa Sigurborg SH 12

Eldur í báti á Skjálfanda 2008

1475. Sæborg ÞH 55 með 1262. Sigurpál ÞH 130 í togi. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Að morgni 2. septembers árið 2008 kom upp eldur í vélarrúmi Sigurpáls ÞH 130 á Skjálfanda. Báturinn var um 1,5 sjm. frá Húsavík og því var stutt fyrir björgunaraðila að sigla að bátnum. Guðbergur Rafn Ægisson formaður Björgunarsveitarinnar hafði þetta … Halda áfram að lesa Eldur í báti á Skjálfanda 2008

Farsæll SH 30 að veiðum

1629. Farsæll SH 30 ex Klængur ÁR 2. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Farsæll SH 30 er hér að veiðum suðvestur af Bjargtöngum í gærmorgun. Farsæll er 177 rúmlesta/237 BT togbátur í eigu FISK-Seafood ehf. á Sauðárkróki. Farsæll SH 30 hét upphaflega Eyvindur Vopni NS 70 og var smíðaður 1983 hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar h/f fyrir Kolbeinstanga … Halda áfram að lesa Farsæll SH 30 að veiðum

Breki VE 61

2861. Breki VE 61. Ljósmynd Magnús Jónsson 2019. Maggi Jóns tók þessar myndir af skuttogaranum Breka VE 61 í Reykjavík. Á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar segir að Breki VE var tekinn upp í slipp í Reykjavík í vikunni í tengslum við skoðun á skipinu í tilefni af því að ársábyrgð kínversku skipasmíðastöðvarinnar rennur brátt út. Skipið var … Halda áfram að lesa Breki VE 61

BBC Portugal í höfn á Húsavík 2008

BBC Portugal ex Mareike B. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Flutningaskipip BBC Portugal kom til Húsavíkur með áburðarfarm í marsmánuði 2008. BBC Portugal hét áður Mareike B og var smíðað árið 2001. Það er 2.545 GT að stærð. Lengdin er 86 metrar og breidd þess er 12 metrar. Skipið hét Mareike B þegar til 2002 þegar … Halda áfram að lesa BBC Portugal í höfn á Húsavík 2008

Slippurinn Akureyri annast framleiðslu og uppsetningu á vinnsludekki í nýjan frystitogara Nergård Havfiske

Ljósmynd slipp.is Slippurinn Akureyri hefur gengið frá samningi um hönnun, framleiðslu og uppsetningu á vinnsludekki um borð í nýjan frystitogara norsku útgerðarinnar Nergård Havfiske. Frá þessu segir á nýrri heimasíðu fyrirtækisins: Norska skipasmíðastöðin Vard sér um smíði á skipinu og mun Slippurinn hafa yfirumsjón með vinnsludekkinu og býður upp á heildarlausn ásamt undirvertökum eins og … Halda áfram að lesa Slippurinn Akureyri annast framleiðslu og uppsetningu á vinnsludekki í nýjan frystitogara Nergård Havfiske