2891. Kaldbakur EA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Kaldbakur EA fór í sína fyrstu veiðiferð snemma í septembermánuði að aflokinni uppsetningu á nýjum og fullkomnum vinnslubúnaði frá Slippnum Akureyri. Búnaðurinn í vinnslunni hefur reynst vel að sögn Angantýs Arnars, annars tveggja skipstjóra á Kaldbaki EA en frá þessu segir á heimasíðu Slippsins. “Við erum mjög … Halda áfram að lesa Kaldbakur EA 1 fer vel af stað með nýtt vinnsludekk
Haförn ÞH 26 kemur að landi á Húsavík
1979. Haförn ÞH 26 ex Þorsteinn BA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Dragnótabáturinn Haförn ÞH 26 kemur hér að landi á Húsavík í dag eftir róður á Skjálfanda. Haförn ÞH 26 hét áður Þorstein BA 1 frá Patreksfirði og smíðaður var í Garðabær árið 1989. Upphaflega Faxafell GK 110, því næst Blíðfari GK 275, Mundi SF … Halda áfram að lesa Haförn ÞH 26 kemur að landi á Húsavík
Særún EA 251
2711. Særún EA 251 ex Elli P SU 206. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Særún EA 251 frá Árskógssandi liggur hér við bryggju á Siglufirði en þar var báturinn smíðaður og afhentur árið 2007. Upphaflega hét báturinn Lúkas ÍS 71 og í eigu Álfsfells ehf. á Ísafirði. Síðar, eða árið 2011, fær hann nafnið Maggi Jóns … Halda áfram að lesa Særún EA 251
Matthildur SH 67
241. Matthildur SH 67 ex Guðbjörg ÍS 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ólafsvíkurbáturinn Matthildur SH 67 lætur hér úr höfn í Hafnarfirði eftir slipp um árið. Matthildur SH 67 hét upphaflega Guðbjörg ÍS 14 og var smíðuð fyrir Hrönn h/f á Ísafirði. Smíðin fór fram í Djupvik í Svíþjóð og kom báturinn til heimahafnar á aðfaranótt … Halda áfram að lesa Matthildur SH 67
Klakkur ÍS 903 í slipp á Akureyri
1472. Klakkur ÍS 903 ex Ísborg II ÍS 260. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Ísafjarðartogarinn Klakkur ÍS 903, sem reyndar er skráður með heimahöfn á Flateyri, hefur verið í slipp á Akureyri að undanförnu. Tjaldtangi ehf. á Ísafirði er eigandi Klakks sem um stuttan tíma hét Ísborg II ÍS 260 en hét áður Klakkur SK 5, … Halda áfram að lesa Klakkur ÍS 903 í slipp á Akureyri
Særif SH 25 á Siglufirði
2822. Særif SH 25 ex Hálfdán Einarsson ÍS 128. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Línubáturinn Særif SH 25 frá Rifi hefur róið frá Siglufirði að undanförnu og voru þessar myndir teknar í gær. Særif SH 25 hét upphaflega Hrólfur Einarsson ÍS 255 og var í eigu Völusteins ehf. í Bolungarvík. Hrólfur Einarsson ÍS 255 var smíðaður árið … Halda áfram að lesa Særif SH 25 á Siglufirði
Vörður ÞH 44 og Þórir SF 77 við bryggju í Hafnarfirði
2962. Vörður ÞH 44 og 2731. Þórir SF 77. Ljósmynd Magnús Jónsson 2019. Maggi Jóns tók þessa mynd í gær en hún sýnir Vörð ÞH 44 og Þóri SF 77 við bryggju í Hafnarfirði. Vörður er 29 metra langur og 12 metra breiður en Þórir er um 38 metrar að lengd og 9,2 metra breiður. … Halda áfram að lesa Vörður ÞH 44 og Þórir SF 77 við bryggju í Hafnarfirði
Hlíf GK 250 frá Grindavík
663. Hlíf GK 250 ex Hlíf ÞH 80. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hlíf GK 250 kemur hér að landi í Grindavík um árið og það sennilega úr línuróðri. Ég birti mynd af bátnum hér á síðunni í desember í fyrra og lesa má um bátinn þar. En í stuttu máli var hann smíðaður af Ernst Pettersen … Halda áfram að lesa Hlíf GK 250 frá Grindavík
Oddgeir ÞH 222
158. Oddgeir ÞH 222. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Oddgeir ÞH 222 er hér á Breiðafirði, nánar tiltekið fyrir utan höfnina í Ólafsvík. Árið sennilega 1986. Oddgeir ÞH 222 var smíðaður í Hollandi árið 1963 fyrir Gjögur hf. á Grenivík og það nafn bar hann í 40 ár eða þangað til hann var seldur árið 2003. Á … Halda áfram að lesa Oddgeir ÞH 222
Hafrafell SU 65 í slipp á Akureyri
2912. Hafrafell SU 65 ex Hulda GK 17. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Línubáturinn Hafrafell SU 65 hefur verið í slipp á Akureyri að undanförnu og var þessi mynd tekin í gær. Báturinn, sem er í eigu Háuaxlar ehf. á Fáskrúðsfirði, hét upphaflega Oddur á Nesi SI 76 og var smíðaður hjá Seiglu á Akureyri fyrir … Halda áfram að lesa Hafrafell SU 65 í slipp á Akureyri









