1434. Þorleifur EA 88 ex Hringur GK 18. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Rammi ehf. í Fjallabyggð hefur keypt allt hlutafé sjávarútvegsfyrirtækisins Sigurbjarnar ehf. í Grímsey. Aflaheimildir félagsins eru um 1.000 þorskígildistonn og eru kaupsamningar gerðir með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Kaupverð er trúnaðarmál. Sigurbjörn ehf. hefur gert út þrjá báta og rekur litla fiskvinnslu í eynni, … Halda áfram að lesa Rammi hf. hefur keypt Sigurbjörn ehf. í Grímsey.
Garpur RE 148
2018. Garpur RE 148 ex Garpur SH 95. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Garpur RE 148 hefur verið hér á Húsavík undanfarna daga eins og hefur áður komið fram á síðunni. Þessar myndir tók ég í gær af bátnum á siglingu í haustblíðunni við Skjálfandaflóa Garpur RE 148 hét upphaflega Litlanes ÞH 52 og eigandi Óli … Halda áfram að lesa Garpur RE 148
Grímsnes GK 555 kom til Húsavíkur í dag
89. Grímsnes GK 555 ex Grímsnes BA 555. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Netabáturinn Grímsnes GK 555 kom til hafnar á Húsavík í dag og ekki rekur mig minni til að hafa séð þennan bát hér fyrr. Upphaflega Heimir SU 100 frá Stöðvarfirði, smíðaður í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk As í Noregi 1963 fyrir Varðarútgerðina hf … Halda áfram að lesa Grímsnes GK 555 kom til Húsavíkur í dag
Ísey að veiðum á Hraunsvíkinni
1458. Ísey ÁR 11 ex Kristbjörg ÁR 11. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar sendi drónann út til að mynda dragnótabátinn Ísey ÁR 11 sl. föstudag þar sem hún var að veiðum á Hraunsvíkinni. 1458. Ísey ÁR 11 ex Kristbjörg ÁR 11. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Ísey ÁR 11, sem er í eigu Saltabergs ehf., … Halda áfram að lesa Ísey að veiðum á Hraunsvíkinni
Rembrandt van Rijn kom til Húsavíkur
Rembrandt van Rijn á Skjálfandaflóa. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hollenska seglskipið Rembrandt van Rijn kom til hafnar á Húsavík nú undir kvöld en skipið hefur komið hingað undanfarin haust. Skipið er þriggja mastra skonnorta smíðuð 1924 sem fiskiskip og hét upphaflega Jakoba. Snemma á níunda áratug síðustu aldar var því breytt til siglinga með farþega og siglir … Halda áfram að lesa Rembrandt van Rijn kom til Húsavíkur
Þinganesið rautt og blátt
2040. Þinganes SF 25. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Hér koma tvær myndir af Þinganesinu sem er eitt fjögurra systurskipa sem smíðuð voru á sínum tíma fyrir Íslendinga hjá Carnave Eir Navais Sa smíðastöðinni í Aveiro í Portúgal. Á efri myndinni er Þinganesið á útleið frá Húsavík í september árið 2012 en á þeirri neðri er … Halda áfram að lesa Þinganesið rautt og blátt
Oddur á Nesi ÓF 76
2585. Oddur á Nesi ÓF 76 ex Hafrún ÍS 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Oddur á Nesi ÓF 76 liggur hér við bryggju á Siglufirði en myndin var tekin sl. föstudag. Oddur á Nesi hét upphaflega Venni GK 167 og átti heimahöfn í Grindavík. Síðar Ragnar SF 550, því næst Guðmundur Sig. SF 650. Næsta … Halda áfram að lesa Oddur á Nesi ÓF 76
Sævík GK 757 kom að landi í Grindavík í dag
2714. Sævík GK 757 ex Óli Gísla GK 112. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Sævík GK 757 kom til hafnar í Grindavík eftir að hafa róið frá Skagaströnd að undanförnu. Sævíkin landaði einum 5-6 tonnum en þetta var fyrsta löndun hennar í heimahöfn eftir breytingarnar sem framkvæmdar voru á bátnum í sumar. 2714. Sævík GK 757 … Halda áfram að lesa Sævík GK 757 kom að landi í Grindavík í dag
Gulltoppur GK 24 við bryggju á Siglufirði
2615. Gulltoppur GK 24 ex Ingibjörg SH 174. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Línubáturinn Gulltoppur GK 24, sem er í eigu Stakkavíkur ehf., er hér við bryggju á Siglufirði sl. föstudag. Gulltoppur GK 24 hét upphaflega Steinunn ÍS 817 og var smíðaður hjá Mótun í Hafnarfirði árið 2004. Hann var seldur til Siglufjarðar árið 2007 þar … Halda áfram að lesa Gulltoppur GK 24 við bryggju á Siglufirði
Garpur RE 148 á Húsavík
2018. Garpur RE 148 ex Garpur SH 95. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Garpur RE 148 kom til Húsavíkur í dag en til stendur að nota hann í kvikmynd sem á að taka hér. Samkvæmt skipaskrá er Góa ehf. eigandi Garps, sem smíðaður var hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1989. Báturinn hét upphaflega Litlanes ÞH 52 og … Halda áfram að lesa Garpur RE 148 á Húsavík









