2704. Bíldsey SH 95 kemur að landi á Siglufirði í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Línubáturinn Bíldsey SH 65 bíður hér þess að komast undir löndunarkranann á Siglufirði í dag. Bíldsey SH 65 hét upphaflega Konni Júl GK 704 og var smíðaður hjá Seiglu í Reykjavík árið 2006. Eigandi Hviða ehf. og heimahöfnin Garður. Árið … Halda áfram að lesa Bíldsey SH 65 kemur að landi á Siglufirði
Tjaldur lét úr höfn á Siglufirði í dag
2158. Tjaldur SH 270. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Línuskipið Tjaldur SH 270 landaði á Siglufirði í dag og voru þessar myndir teknar þegar hann lét úr höfn undir stjórn Vigfúsar Markússonar. 2158. Tjaldur SH 270. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. "Tjaldur er 42,9 metra langur og var skrokkur bátsins er smíðaður í Salthammer Båtbyggeri í Noregi, … Halda áfram að lesa Tjaldur lét úr höfn á Siglufirði í dag
Brynjólfur VE 3
1752. Brynjólfur VE 3 ex Flatey ÞH 282. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir af Brynjólfi VE 3 þegar Ottó N Þorláksson VE 5 mætti þeim fyrrnefnda í dag. Brynjólfur hét upphaflega Gissur ÁR 6, ÞH 37 í smátíma og síðar Flatey ÞH 383 áður en hann var keyptur til Vinnslustöðvarinnar í … Halda áfram að lesa Brynjólfur VE 3
Vancouverborg við Bökugarðinn
IMO 9213741. Vancouverborg við Bökugarðinn í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hollenska flutningaskipið Vancouverborg kom til Húsavíkur í gærkveldi og lagðist að Bökugarðinum. Skipið, sem kom með hráefnisfarm til PCC á Bakka, siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Delfzijl. Vancouverborg var smíðað árið 2001 og er 6.361 GT að tærð. Lengdin er 132 metrar og … Halda áfram að lesa Vancouverborg við Bökugarðinn
Herjólfur hinn nýi
2941. Herjólfur. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir í dag þegar Herjólfur kom til hafnar í Vestmannaeyjum. Þetta eru fyrstu myndirnar sem birtast af þessu skipi hér á síðunni og kominn tími til því hann kom til landsins í júní sl. Herjólfur er 3,270 BT að stærð og skráð lengd hans er … Halda áfram að lesa Herjólfur hinn nýi
Northguider H-177-AV
Northguider H-177-AV ásamt björgunarskipum við Svalbarða í dag. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson. Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á Reval Viking sendi síðunni þessa mynd sem hann tók við Hinlopen á Svalbarða í dag. Hún sýnir rækjutogarann Northguider H-177-AV sem strandaði í lok síðasta árs ásamt björgunarskipum. Þau eru sjö talsins en Eiríkur segir öllu hafi verið tjaldað til … Halda áfram að lesa Northguider H-177-AV
Afi fór á sjó
Afi á leið í róður í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Afi fór á sjó frá Húsavík í dag en þar sem báturinn hefur engin sjáanleg númer er lítið um han að segja. Nema jú að Ægir Eiríks var með hann. Annars var rjómablíða við Skjálfanda í dag líkt og undanfarna daga og Ægir nýtt … Halda áfram að lesa Afi fór á sjó
Eskja selur Hafdísi SU 220
2400. Hafdís SU 220 ex Hafdís GK 118. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Útgerðarfélagið Eskja hf. á Eskifirði hefur selt Nesveri ehf. á Rifi línubátinn Hafdísi SU 220. Austurfrétt greinir frá þessu og þar segir að gengið hafi verið frá kaupunum í byrjun september. Hafdís er er 29,7 BT að stærð, smíðaður árið 1999 og hét upphaflega … Halda áfram að lesa Eskja selur Hafdísi SU 220
Bergey VE afhent Bergi-Hugin í dag
2964. Bergey VE 144. Ljósmynd Guðmundur Alfreðsson 2019. Í dag var ný Bergey VE afhent Bergi-Hugin, dótturfyrirtæki Síldarvinnslunnar í Vestmannaeyjum, í Aukra í Noregi. Frá þessu segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar hf. Bergey er eitt af sjö skipum sem skipasmíðastöðin Vard smíðar fyrir íslensk fyrirtæki og er hún systurskip Vestmannaeyjar VE sem afhent var Bergi-Hugin í … Halda áfram að lesa Bergey VE afhent Bergi-Hugin í dag
BBC Lagos kom til Húsavíkur í dag
IMO 9570668. BBC Lagos. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið BBC Lagos sigldi inn Skjálfandann í veðurblíðu dagsins og lagðist að Norðurgarðinum á Húsavík. Þar biðu skipsins vinnubúðir sem skipa á um borð í það. BBC Lagos var smíðað í Kína árið 2012 og er 7,138 GT að stærð. Lengd þess er 131 metrar en breiddin … Halda áfram að lesa BBC Lagos kom til Húsavíkur í dag









